Kirkjuritið - 01.12.1968, Síða 40

Kirkjuritið - 01.12.1968, Síða 40
502 KlltKJUIilTIU þá fer ég þó lieldur bónarveg vegna kærleikans, ég, hann Páll gamli, ég sein nú er auk þess bandingi ICrists Jesú. Ég bið þig fyrir bamið mitt, sem ég liefi getið í fjötruni mínum, hann Onesímus. Hann var þér áður óþarfur, en er nú velþarfur bæði mér og þér. Nú sendi ég hann aftur til þín, hann, sem er hjartað J brjósti mér. Feginn liefði ég viljað liafa hann bjá mér og láta liann þjóna mér í þinn stað, meðan ég er í fjötnnn vegna fagnaðar- erindisins. En án þíns samþykkis vildi ég ekkert gjöra, til þess að hið góða, sem þú gjörir mér, komi ekki eins og af nauðung, lieldur af því að þú vilt það sjálfur. Því að líklega liefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðar fengir að halda lionum eilíf' lega, ekki lengur eins og liann væri þræll, lieldur þræli freniri, elskulegur bróðir þinn. Eða svo er það að minnsta kosti um mig, en livað þá um þig, sem átt hann bæði líkamlega, og svo nú einnig að trú- hróður. Ef þú því vilt eiga mig að félaga, þá taktu á móti honuni eins og það væri ég sjálfur. En ef hann hefur gert eitthvað á móti þér eða skuldar þér, þá fær þú það mér til reiknings. Ég, Páll, gef þér það skriflegt með eigin hendi: Ég skal borga það. Að ég ekki segi: Fær þú það sjálfum þér til reiknings. Því að þu ert í raun og veru í skuld við mig, -—um sjálfnn þiff! Já, bróðir minn, hví skyldi ég ekki njóta þess, að ég leiddi þig til drottins? Endurnær hjarta mitt sakir Krists. Ég skrifa þér í fullu trausti til þess, að þú gerir meira en ég fer fram á. En hafðu líka til gestaherbergi lianda mér, þv* að ég vona, að ég verði gefinn yður vegna hæna yðar. Epafras, sambandingi minn vegna Krists Jesú, biður að lieils3 þér, sömuleiðis Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverka- menn mínir. Náðin Drottins Jesú Krists sé með anda yðar.“

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.