Kirkjuritið - 01.04.1973, Page 14

Kirkjuritið - 01.04.1973, Page 14
Það er Pálsmessa á öndverðum þorra, sem áður nefndist í almanök- um, „Afturhvarfsdagur heilags Páls" og íslendingar tóku mark á um veðr- áttu allan ársins hring. Merkisdagur alla tíð. — Liðið er að náttmálum. Turn síra Hallgríms gncefir við dökk- an kvöldhimin með skíðgarð sinn og trönur upp á miðjar síður. Inn þang- að er för okkar sira Guðmundar í Skálholti heitið til fundar við unga kennaranema, sem fúsir eru til að segja hug sinn um kristindóm, hvern- ig þau kynntust honum í bernsku, hvernig afstaða þeirra sjálfra er til trúarinnar og hvernig honum verði til skila komið i kennslu. Brátt eru kennaranemarnir komnir með kyrlátt fjör œsku sinnar, einlœgni og alvöru. Þau eru: Guðbjörn Egils- son, Gunnar Finnbogason, Kolbrún Guðjónsdóttir, Hrefna Óskarsdóttir og Sjöfn Ágústsdóttir. í hœversku sinni telja þau sig ekki öðrum skólasystkinum hœfari til þessara viðrœðna, en fús eru þau, enda er hér enginn rannsóknarréttur settur, heldur vinsamleg samrœða. Innan stundar tökum við að impra á efninu og spyrjum þau um frœðslu þá, er þau nutu á barns- og unglings- árum í skólum. Þau hika, en svo rœt- ist úr: Gunnar: — Það er ósköp lítið, sem ég man eftir úr barnaskóla, en í gagnfrœðaskóla hafði ég góðan kennara. Ég þekkti hann raunar frá því að ég var í sunnudagaskóla. Hann kenndi mjög vel. Hrefna: — Kristin frœði voru mjög vel kennd í barnaskóla fannst mér. Sjöfn: — Mér finnst ég muna það vel, sem ég lœrði í barnaskóla, þegar ég rifja það upp núna í Kennaraskólan- um. Þó finnst mér það hafa verið galli, hve mikið var dregið undan, hve miklu var sleppt og sérstaklega var efnið fegrað bœði í biblíusögun- um og í kennslunni miðað við það, hvernig frá er sagt I Biblíunni. Mér

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.