Kirkjuritið - 01.04.1973, Blaðsíða 17
— að benda á Jesúm Krist sem leið-
toga, fyrirmynd og frœðara. — ,,Það
er annars fróðlegt að fá að heyra
þessa niðurstöðu." —
— Finnst ykkur þá tilgangur
frœðslunar óljós, sem þið fenguð í
barnaskóla?
Gunnar: — Ég hefi samanburð. Ég
hefi alizt upp í K. F. U. M., og það,
sem ég fékk að heyra þar var alveg
ólíkt kristinfrœðikennslunni í barna-
skólanum. Það, sem ég heyrði í K. F.
U. M. dró mig alltaf á fundi og hefir
orðið mér til blessunar. Ég álít, að
Gunnar Finnbogason
kristinfrœðikennslan eigi að vera mót-
andi til trúar. — Menn deila að vísu
um það, hvort svona kennsla eigi að
vera mótandi.
Þá kemur það fram hjá hinum, að
þau álíti, að öll kennsla sé i rauninni
mótandi, og allur lœrdómur hafi áhrif,
hvernig svo sem þau áhrif séu. Hjá
því geti ekki farið.
— Hvað segið þið þá um þá
kennslu, sem þið hafið fengið í Kenn-
araskólanum í þessum efnum?
,,Hún er góð," segir Guðbjörn,
„sérstaklega þar sem kristinfrœði er
Guðbjörn Egilsson
15