Kirkjuritið - 01.04.1973, Blaðsíða 22

Kirkjuritið - 01.04.1973, Blaðsíða 22
kristinfrœði en þeir, sem hafa tilgang trúarinnar fyrir sjónum? Kolbrún: — Já, þetta er það mikið tilfinningamál. Kristinfrœði er ekki eins og landafrœði. Eins er það, ef í einhverjum bekk er barn, sem ekki er kristinnar trúar eða er ekki í þjóð- kirkjusöfnuði, þá finnst mér, að tillit skuli taka til þess, og það fái undan- þágu. Sr. Guðmundur Óli: — Það munu líklega ekki vera til ákvœði, sem skera úr um þetta, en það hefir þó verið þannig, að mér skilst, að t. d. rómversk-kaþólskir hafa fengið und- anþágur, þar sem kennarar hafa ver- ið lútherskir. Sjöfn: — Þegar svo stendur á, að einhver er annað hvort ekki kristinn eða er í öðrum söfnuði, þá vœri e. t. v. rétt að kenna í tveimur aðgreindum tímum t. d. siðfrœði í öðrum, en kristna trú í hinum. Siðfrœði, sem komin er frá kristinni trú og öðrum trúarbrögðum. Kristindómsfrœðslan er skírnarfrœðsla — Þegar hér er komið bendir sr. Guðmundur Óli á það, að það sé skilningur presta, að skólarnir taki að sér kristindómsfrœðsluna sem skirnar. frœðslu fyrir kristna foreldra og í um- boði kirkjunnar, þess vegna sé í raun- inni ósamkvœmni í því að skylda börn vantrúaðra foreldra, börn, sem ekki hafa verið skírð, að sœkja þessa kennslu. — Undir þetta er tekið af öllum, en Gunnar vekur athygli á því, að þeir kunni þá að hafa eitthvað til síns máls, sem vilji ekki hafa kristin- dómsfrœðslu í skólum, heldur sjái kirkjan sjálf um þessa frœðslu. En þá er á það minnt, að skólarnir séu í upp- hafi vega settir á stofn af kirkjunni. Skólinn var reistur á kristnum grunni. Prestarnir sáu lengi vel um það, að börn og unglingar fengju kennslu í nokkrum nauðsynlegum greinum meðan ekki voru til skólar í þeirri mynd, sem síðar varð og nú er. Krist- in trúfrœðsla var fremst allra greina. Með henni var lagður grunnur að auðnu í lífsframgangi öllum, og það reyndist svo. Því verður ekki á móti mœlt með rökum. Þeir skólar, sem nú eru við lýði, eru arftakar hins kristna skóla. Sá skilningur hefir verið áber- andi meðal margra skólamanna, að skólinn skuli hafa kristið markmið. Verði þetta sjónarmið látið vikja, er landslýður í vanda staddur og kynni að spyrja hvaða markmið honum sé þá œtlað í starfi sínu og uppeldi. Hins er ekki að dyjast, að hið kristna markmið skóla verður fyrir árásum t. d. marxiskrar mannúðarstefnu, sem svo er nefnd, og i auknum mœli. Meðan á þessum samrœðum stóð hefir enn einn bœtzt í hópinn, Guð- mundur Einarsson, aðstoðar-œsku- lýðsful Itrúí, kennari að menntun. Hann er fljótur að átta sig á umrœðu- efninu og ber fram þá spurningu, hvort við höfum ekki heyrt það, að sumir ungir kennarar telji, að kristin- dómurinn hafi forréttindi í skólum, sem hann œtti ekki að hafa og hvort okkur þyki þá, að kristindómi sé mik- 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.