Kirkjuritið - 01.04.1973, Blaðsíða 48
JÓHANNES TÓMASSON, STÚDENT.
Schloss Mittersill
I vestanverðu Austurríki er dalur einn þéttbýll og í honum er m. a. þorp, sem heitir Mittersill. I hlíð
skammt ofan við þorpið stendur höll með sama nafni, reist einhvern tíma á 12. öld. Hún var byggð
sem virki fyrir sveitina, en á miðöldum var hún notuð sem fangelsi og mó nú enn finna þar
,,hungur-klefann,/; og aðra ólíka staði. Lítil, gotnesk kapella var byggð við höllina árið 1533. Hubert
barón breytti höllinni í lúxus-hótel 1936, og hafa dvalið þar stórmenni úr kvikmyndaheiminum og
ýmsir iðnjöfrar. Núverandi eigandi er samtökin International Fellowship for Evangelical Students.
Var höllin keypt árið 1 967 og er rekin
sem hótel af ódýrari tegundinni. Og
samtökin hafa staðið þar fyrir nám-
skeiðum til að gera stúdenta betur
hœfa til kristilegra starfa m. a. í há-
skólum. Safnast þar saman kristnir
menn frá öllum heimshornum. Síðast
liðið sumar voru tveir Islendingar á
námskeiði þar og var það aðallega
fólgið í biblíulestrum alls konar. Dvöl
okkar þarna var mjög ánœgjuleg, og
hópurinn varð mjög samhuga og fólk
fljótt að kynnast, enda vorum við
saman í hálfan mánuð. Spánn, Frakk-
land, England, Ameríka, Ástralía og
Afríkulönd áttu sína fulltrúa i hópn-
um svo og önnur lönd austan járn-
tjalds, alls tœplega 100 manns frá um
20 löndum. Námskeiðið fór að mestu
leyti fram í fyrirlestrum og skal nú
skýrt nánar frá því.
Á SKÓLABEKKNUM
Á morgnana talaði prestur einn frá
NorSur-írlandi H. C. Carson, um
ávexti andans. Hann tók fyrir versið
hjá Páli í Galatabréfinu 5,22: „En
ávöxtur andans er: kœrleiki, gleði,
friður, langlyndi, gœzka, góðvild, trú
mennska, hógvœrð, bindindi." Carson
fjallaði um einn þátt versins hvern
morgun og var mjög fróðlegt og gott
að heyra, hvernig hann gerði þessu
skil og lagði mikla áherzlu á, að þessi
friður og allir þessir ávextir andans
eru Guðs gjöf, sem við verðum að
taka á móti.
Fyrir hádegi var annar flokkur fyr-
irlestra og var það Mr. Paul Fromer
frá Ameríku, sem talaði þá um ýmsar
höfuðkenningar kristindóms. Fromer
var áður ritstjóri kristilega tímaritsins
„His", sem gefið er út í Bandaríkjun-
um. Hann tók fyrir efni eins og guð-
dóm Jesú, þýðingu dauða hans, upp-
risu og endurkomu, innblástur og
vald Biblíunnar. Fromer sagði m. a.,
að hver sem sneri sér til Jesú vceri
frelsaður. „En hver er þá Jesús? Bibl-
ían svarar því. Við viljum vita, hve
sönn hún er og við verðum að finna
46