Kirkjuritið - 01.04.1973, Side 50

Kirkjuritið - 01.04.1973, Side 50
Samuel Kahil t. h. og Sindayigaya Livingstone. AÐ NOTA HVERJA STUNDINA Á kvöldin voru yfirleitt samverustund- ir og einhver leiðtoganna talaði þá. Minnistœðastur er náungi einn frá Ameríku, Dr. John Alexander. Hann talaði um það, hvernig kristnir menn noti tíma sinn. Við erum oft í tíma- hraki, að því er virðist, en kunnum við þá að nota okkar dýrmœta tíma rétt? Hann sagði m. a. að oft vœri það þannig, að vinnan vœri meiri en tíminn, sem við hefðum, að við kœm- um of litlu í verk, verkin vœru illa unnin og að við sóuðum miklum tíma. — Hver kannast ekki við slíkar hugleiðingar? — Þá benti hann okkur á að biðja og taka svo ákvarðanir undir handleiðslu Guðs um það, hvað þyrfti að gera, hversu áríðandi þetto og hitt vœri og hvað mœtti sitja a hakanum. Og Dr. Alexander sagð' frá því, sem hann gerir nokkuð mikið af, þ. e. að skipuleggja tímann. Ekki samt að skipuleggja og biðja síðan um blessun Guðs, heldur þveröfugt- Svo gaf hann smá dœmi um áœtlun fyrir vikuna, og hann tók allt með, allt frá því að taka stórar og þýðing' armiklar ákvarðanir yfir í bréfaskrift- ir og símtöl! Þá minnti hann á það, að telji maður sig þurfa að gera o- œtlanir, verði líka að fara eftir þeim, séu þœr vel gerðar og undir hand- leiðslu Guðs, sem hann lagði mikl° áherzlu á. 48

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.