Kirkjuritið - 01.06.1976, Page 58

Kirkjuritið - 01.06.1976, Page 58
Orðabelgur Alkirkjuráðið og framtíð kristninnar Lausannesáttmálinn, sem birtur var í Kirkjuriti ekki alls fyrir löngu, hefur komið nokkru róti á hugi margra krist- inna manna víða um lönd. Ekki verður þó séð til fulls, hvað af muni spretta. En nokkrar líkur eru til þess, að Al- kirkjuráðið standi á tímamótum. Litlu virðist muna, að það splundrist. Ekki væri óblandið fagnaðarefni, ef svo færi, en raddir þeirra, er gagnrýna ráð- ið og leiðtoga þess, verða æ fleiri og háværari. Og sízt hafa þær hljóðnað eftir síðasta þing samtakanna. Það var haldið í Nairobi í Kenya í lok ársins, sem leið. Fyrir skömmu birtist frásögn af þingi þessu ásamt nokkrum hugleiðingum í Morgunblaði. Höfundur var síra Gunn- ar Kristjánsson ( Vallanesi, er nú dvelst raunar við nám í Þýzkalandi. Fáein atriði í greinum síra Gunnars verða hér gerð að umræðuefni, enda ætti hreinskilin umræða engu að spilla. Ekki skal ræða sögu Alkirkjuráðs- ins, hugsjónina handan þess, né þá guðfræði, er hún var blandin. Mörgum þótti hún hæpin frá upphafi, og þeir dagar gætu runnið upp, að hún þætti með öllu óhafandi. Það, sem hér skal að vikið, má hins vegar teljast ávöxtur 136 hennar eða afsprengi. í fyrri grein síra Gunnars, þeirri, er birt var í Morgun- blaði 18. marz s. I., segir svo m- a.: ,,Og nú þegar tímabil kristniboðs- ins í sinni hefðbundnu mynd er a enda runnið, þegar afrískur kristin- dómur er búinn að finna sjálfan sig o9 þegar kirkjusókn á Vesturlöndum fer æ minnkandi, þá horfa vestrænir kirkjuleiðtogar vonaraugum í átt suð- ur. Gæti afrísk guðsrýrkun leyst okkar steinrunnu messugerð úr álögum? Gæti afrísk guðfræði lífgað við okkar pappírskenndu guðfræði? Gæti afr- ískur, kristinn mann- og þjóðfélags- skilningur gefið okkur nýtt mat á verð- mætum, nýja skoðun á hráefnum. verksmiðjum, lúxus, fyllt ef til vill okk- ar innantómu belgi nýju víni? Er frarn- tíð kristindómsins ef til vill í Afríku? Þannig er spurt í hinum kristna heimi-‘ Er skeið kristniboðs á enda? Ekki er ætíð glöggt, hvar síra Gunnar er að lýsa sjónarmiðum, sem fram hafa komið á þingum og í nefndum Al' kirkjuráðsins ellegar hann talar fra eigin brjósti. Hvað sem um það er, Þa er í þessum orðum fullyrðing, sem

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.