Kirkjuritið - 01.06.1976, Qupperneq 60
Ekki er með neinum hætti skýrt,
hvað átt sé við, þegar rætt er um að
boða trú í einhverjum óræðum skiln-
ingi, og engin grein er fyrir því gerð,
hvernig Kristur kalli kirkju sína til á-
kveðinna starfa á hverjum tíma. Af því,
sem á undan er farið, virðist þó svo að
skilja, að kirkjan sé í raun réttri köll-
uð til sömu starfa og Sameinuðu þjóð-
irnar eru að fást við með miður góðum
árangri. Og til þessa á hún að vera
betur fallin sökum þess, að hún er ó-
háð stjórnmálastefnum, kynþáttamis-
mun og hafin yfir mismun kynja.
Trúlega mun þetta þykja góð guð-
fræði einhvers staðar nú í svip, en af-
leit pólitík hygg ég, að það muni þykja
nokkuð víða. Dapurlegur atburður
gerðist á þinginu. Bréf barst til þess
frá tveim þegnum orþódoxu kirkjunn-
ar í Sovétríkjunum varðandi ofsóknir
stjórnvalda þar gegn trúuðu fólki.
Munu margir líta svo á, að viðbrögð
þingsins og afleiðingar þeirra hljóti að
mega teljast glöggt dæmi um mátt og
áhrif Alkirkjuráðsins í heimspólitíkinni.
Síra Gunnar skýrir allýtarlega frá
málavöxtum í síðari grein sinni. Hún
birtist í Morgunblaðinu 23. marz s. I.
Hvernig frelsar Jesús Kristur?
En fleira bar þar á góma. Lokaorð
greinarinnar eru þessi: „Jesús Kristur
frelsar og sameinar," var yfirskrift
þessa fimmt allsherjarþings Heimsráðs
kirkna í Nairobi. Það var verkefni
þingsins að skilgreina, hvað það merk-
ir á raunveruiegan, ,,jarðneskan“ hátt
í nútímanum. Þarna voru fulltrúar frá
öllum heimsálfum, af öllum kynþátt-
um, fólk, sem býr við öll hugsanleg
stjórnmála- og viðskiptakerfi, öll hugs-
anleg skólakerfi, fólk, sem býr við
kúgun eða býr í löndum, sem kúga
aðra. Jesús Kristur sameinar það í Þvl
verki að ,,frelsa“ í orðsins fyllstu
merkingu og ,,sameina“ sundraðan
heim. Það er hlutverk kristinnar
kirkju.“
Hér er mikið sagt, og þó eru einnig
vaktar spurningar, sem ekki eru smá-
ar. Hvernig frelsar Jesús Kristur? Hvað
er að frelsa í orðsins fyllstu merkingu?
Hvernig sameinar Jesús Kristur sundr-
aðan heim? Hver var hin raunverulega
og jarðneska merking orðanna ,,a®
frelsa“ og ,,sameina“ að dómi þing-
heims í Nairobi?
Svörin eru farin á undan. Og mi111
lína virðist mega lesa, að þau séu ný'
stárleg og haldgóð, að orðum haf1
verið fengin ný og sönn merking. Ein'
hvern veginn er þó dálítið erfitt að
henda reiður á þeim svörum og merk'
ing þeirra. Vitnað er til ástralsks
fræðings, sem Charles Birch heitir. Þar
er talað um, að frelsun jarðarinnar og
jarðarbúa sé eitt heildarátak, sem fel1
í sér „frelsun undan mengun, frelsnn
hinna fátæku, frelsun konunnar,
mannsins, vísindanna, tækninnar, ár'
anna, plantnanna, loftsins, sjávarins’
fjallanna, skógarins o. s. frv.“
Allt kann þetta að vera satt og rétt.
en þó læðist sá grunur að við
þessa, að hér sé einungis verið a_
ræða um jarðneskt hjálpræði, sem s
af „þessum heimi“. Og sá grun1^
styrkist heldur en hitt, þegar lengra e
lesið. Þegar vikið er orðum að íslenz
kirkjunni, er ekki hvatt til þátttöku
einingarviðleitni Alkirkjuráðsins
138