Kirkjuritið - 01.06.1976, Side 66
ann birti hann í honum (sbr. Jóh. 1.17
—18; 3.16; 14.6). Á Jesú Kristi einum
grundvallast því trúin, en ekki á neinu
öðru svo sem meðfæddum eiginleikum
manna.
2.2.7. Um trúna
Trúin er að treysta vitnisburðinum um
það, að Guð hafi í syni sínum sætt
alla menn við sig, og að sú sáttargjörð
nægi mönnum til sáluhjálpar.
Trú sem slíkt traust veitir mönnum
rétt samband við Guð, því að hún við-
urkennir verk hans oss til sáluhjálpar.
Trú sem slíkt traust er grundvallar-
afstaða til lífsins og allra fyrirbæra
þess.
Trú sem slíkt traust vex til frekari
þroska, þegar guðssamfélagið er rækt
með því að ástunda þær iðkanir, sem
Guð hefur sjálfur sett oss til hjálp-
ræðis og til viðhalds og uppbyggingar
trúnni: lesa og íhuga Biblíuna, biðja
í Jesú nafni, rækja samfélag safnaðar-
ins, neyta heilagrar kvöldmáltíðar (sbr.
Post. 2.42).
2.2.8. Um vonina
Vonin er grundvölluð á trúnni og horf-
ir fram til þess tíma, að Guð geri alla
hluti nýja og opinberi sigur sinn í Jesú
Kristi yfir öllu holdi.
Vonin grundvölluð á trúnni treystir
því, að hagur manns liggi í hendi
skaparans, og að sigur hans í Kristi
á páskum muni um síðir opinberast.
Þetta gildir líka um dauðann. í von
felur trúin sérhvern þann, sem deyr,
miskunn Guðs á vald og minnir Guð
á fyrirheit sín og vilja og biður hann
miskunna öllum oss fyrir Jesúm Krist.
Frelsunin er í hendi hans.
2.2.9. Um kærleikann
Kærleikurinn er einingarbandið, sem
tengir Guð og verk hans. Kærleikur-
inn er einingarbandið, sem tengit
mennina saman innbyrðis. Sá, sem
grundvallar líf sitt á trúnni og voninni,
hann lætur kærleikann móta líf sitt
fyrir kraft heilags anda, sem veittur
er í skírninni sem pantur.
Andstaða kærleikans er það, sem
sundrar og eyðir, allar myndir hins
illa. Með bæn og beiðni ákallar trúin
heilagan anda, að hann móti líf vort,
eyði ávöxtum hins illa úr voru eigin
lífi og úr umhverfi voru, en birti á oss
og í umhverfi voru ávexti sína: Kser-
leika, gleði, frið, langlyndi, gæzku,
góðvild, trúmennsku, hógværð, bind-
indi (Gal. 5.22—23).
2.2.10. Um eilfft líf
Eilíft líf er líf með Guði. Sá, sem lif'r
í trú, von og kærleika, nýtur þegar
samfélags við Guð í óljósri mynd 3
jörðu, en augliti til auglits, þegar Guð
hefur sjálfur opinberað sigur sinn ýí,r
öllu.
Sá, sem í trú tekur við óverðskuld'
aðri náð Guðs og þorir að fela sig
miskunn hans á vald í lífi sínu, hann
gefst ekki upp gagnvart dauðanum,
heldur felur sig og aðra menn Þeirrl
sömu miskunn Guðs á vald og biður
Guð, sem elskar oss óverðskuldað,
að auðsýna á oss og öllum mönnun1
elsku sína.