Kirkjuritið - 01.06.1976, Page 69
3-2.2. Nútíma spiritismi
^Ppruni nútíma spiritisma er rakinn til
fyrirbæra, er ur5u í húsi einu í smá-
b®num Hydesville í New York og þóttu
standa í sambandi við stúlkubörn, 12
°9 15 ára gömul, Margaret og Kate
Fox að nafni. Þær systurnar urðu síðar
Þekktir miðlar, en ferill þeirra og upp-
hafsfyrirbærin hafa ætíð sætt nokkrum
Vafa jafnvel hjá einlægum spiritistum.
Petta var skömmu fyrir miðja 19.
0|P- En frá Hydesville spurðust tíðindin
ut um gjörvöll Bandaríkin, og menn
toku að stunda ýmsar tilraunir í þá átt
ná sambandi við anda framliðinna.
Innan skamms bárust fréttir af því, að
°Pnað væri samband við annan heim.
Áhuginn barst fljótlega yfir til
Vr°Pu, og þar urðu fyrirbærin ekki
S'Sri en vestra. Nafnið spiritismi (anda-
y99ja, andatrú) festist við hreyfingu
i ssa og urðu vinsældir hennar gífur-
e9ar meðal fólks og alls kyns furður
v°ru skráðar gerast í sambandi við
1 kanir hennar. Að því er virtist, var
e ki nokkur vafi á því, að hér væri um
a ræða fyrirbæri, er leiddi í Ijós til-
Vlst hulinnar andaveraldar og gæti
Jsfnvel leitt í Ijós ódauðleika sálar-
'nnar.
^kanirnar þóttu þó tvíræðar frá
PPhafi. Ymis svik voru afhjúpuð í
°Pum spiritista. í kringum hreyfing-
Qna myndaðist andrúmsloft sefjunar,
9 °ft gerSist það, að fullkomlega
s lle9 fyrirbæri voru í augnabliks-
JUn útskýrð með dularfullum hætti.
^a°sar þakplötur, er skókust í vindi,
er .. e- t- v. að svipum framliðinna,
ti| !°lclust v6i"a að gefa nærveru sína
y°na með kynlegum hljóðum. Oft
var í hópum spiritista stundað vafa-
samt kukl og tilfinningar fólks hafðar
að leiksoppi án þess að unnt væri við
að gera.
Fyrirbærin og hreyfingin kringum
þau voru að sjálfsögðu metin á mis-
munandi hátt. í einum hópi voru efnis-
hyggjumennirnir, er þóttust fullkom-
lega áhugalausir um þær spurningar,
er iðkanir spiritismans vöktu, svo sem
varðandi líf eftir dauðann. Hjá öðrum
yakti athæfið og einkum þau svik, er
margir iðkendur urðu uppvísir að,
óvild og fyrirlitningu. Hjá enn öðrum
vöktu fyrirbærin sjálf, án tillits til túlk-
unar iðkenda, ákveðna forvitni gagn-
vart þeim veruleika, sem spiritisminn
virtist opna.
Um spiritismann almennt visast til West (1967),
sömuleiðis varðandi upptök og þróun sálar-
rannsókna.
3.2.3 Sálarrannsóknir
Á Englandi hófust fyrst vísindalegar
athuganir á þeim fyrirbærum, er spiri-
tisminn vitnaði um, og á skyldum fyrir-
bærum í ýmiss konar reynslu fólks.
Bretland var fyrirmyndarland meðal
Evrópulanda á 19. öld. Þar hafði hug-
sjón frelsis og framfara unnið sigur án
átaka, þar ríkti gamalgróin hefð raun-
hyggju í vísindum og heimspeki. Skyn-
semi í stjórnmálum og vísindum virtist
þar hafa sigrað svo, að ekki væri um
villzt. Líkt og brezkt hugvit og brezk
stjórnvizka var nú um það bil að leggja
undir sig heiminn og siðmennta hann,
svo virtist sem brezkri þekkingu yrði
bráðlega enginn stakkur skorinn og
vísindalegar niðurstöður væru að
verða til varðandi allt.
147