Kirkjuritið - 01.12.1976, Qupperneq 20
SR. SIGURÐUR PÁLSSON, vígslubiskup:
Um Handbók fyrir
presta og söfnuði
Á prestastefnu 1966 kom skyndilega
upp brennandi áhugi fyrir endurskoö-
un helgisiðabókar frá 1934. Var þá
kosin nefnd til að vinna að þeirri
endurskoðun. Næsta kirkjuþing bætti
í nefndina tveimur leikmönnum.
Hvorki prestastefna né kirkjuþing
gaf nefndinni neinar bendingar um, að
hverju stefna skyldi við þá endur-
skoðun, né heldur voru nein tímatak-
mörk sett. Síðan hefur ekkert frá þess-
ari nefnd sést né heyrst.
Á síðustu prestastefnu lagði biskup
svo fram vélritaða handbók fyrir presta
og söfnuði. Undirtitill hennar er ,,Drög
að tillögu“. Handbók þessi tekur til
allra venjulegra kirkjuathafna, nema
þeirra, er biskup framkvæmir. Þó vant-
ar þarna form fyrir skírn fullorðinna
manna, staðfestingu á skemmri skírn
og kirkjulega blessan yfir borgaralegt
hjónaband.
Biskup er sjálfur höfundur þessarar
handbókar og leggur hana fram sem
sitt verk þó með vitund eftirlifandi
nefndarmanna án þess að þeir hafi þó
tekið afstöðu til hennar. Jafnframt tók
hann fram, að hún væri ófullgerð en
hann vildi fá athugasemdir stéttarinnar
við hana til hliðsjónar við framhald
verksins.
Kirkjuritið hefur boðið mér að skrifa
um bókina, til þess að hvetja aðra, a®
gefa þessu verki gaum, og þegja ekk'
þangað til um seinan er að gera at-
hugasemdir, eins og oft hefur orðið
raunin á, t. d. um sálmabókina og anm
að, sem leitað hefur verið eftir álif'
manna um.
Ómetanlegt er fyrir nefndina eða
aðra þá, sem koma til að vinna að
þessu mikilvæga verki, að hafa svo
mótaðar tillögur að byggja á.
Þó er meira virði, að tillögur þessar
fara mjög í sömu átt og hin almenna
þróun líturgiunnar hjá öllum kirkjU'
deildum nútímans. Aðrir helstu kostir
þeirra eru meiri tilbreytni en áður °9
einkum aukin þátttaka leikmanna
framkvæmd messunnar. Með Þv' eí
betur gætt hins almenna prestsdóm5’
sem varla hefur átt hér nokkurt svið
rúm síðan almennur kirkjusöngur la9
ist niður.
258