Kirkjuritið - 01.12.1976, Qupperneq 32
hann stundaði áfram lækningar sínar.
Og þótt hann væri kominn á gamals
aldur hóí hann nú baráttu — og aS
einhverju leyti nám, — til þess að að
hljóta læknisréttindi. — Því marki náði
hann, árið 1910, — öðlaðist skírteini
sem viðurkenndur meðlimur læknafé-
lags Bandaríkjanna. — En þeirra rétt-
inda naut hann, — því miður, — of
skamma hríð, — því fáum mánuðum
síðar, — í janúar 1911, — var hans
óvenjulegi — og litríki lífsferill til lykta
leiddur.
Um sr. Odd látinn sagði sr. Jón
Bjarnason m. a.: ,,Svo gat virzt, sem
hann hefði það einkenni hinnar forn-
norrænu víkingslundar að treysta eigin
mætti nálega takmarkalaust. Sú var
þar þó bót í máli, að í dýpstu alvöru
treysti hann föðurforsjón Guðs, — en
sú trú hans stafaði af því og studdist
við það, að hann hélt allt fram í dauð-
ann fast við meginmál kristindómsins
— endurlausnina í Jesú Kristi." — Enn
eru ónefnd mörg nöfn, sem gnæfa hátt
í kirkjufélaginu vestur-íslenzka, —
settu á það svipmót sitt og mörkuðu
stefnu þess að meira eða minna leyti
um lengri eða skemmri tíma. — Þeirra
á meðal eru t. d. dr. Björn Jónsson,
sem tók við forsetastörfum af sr. Jóni
Bjarnasyni á kirkjuþingi 1908 — og
gegndi því embætti til 1921, svo aðeins
eitt af mörgu sé nefnt. Hvar sem leið
hans lá var hann framarlega í fylkingu,
kjörinn til forystu, — og naut hvar-
vetna álits og virðingar. Hann var við
ritstjórn Sameiningarinnar í áratugi.
Einnig ritstýrði hann ársritinu Áramót,
sem kirkjufélagið gaf út á árunum
1905—1909, ennfremur þremur fyrstu
árgöngunum af barnablaðinu Kennar-
inn, sem áður er nefnt og sr. Stein-
grímur Þorláksson tók síðan við. — A
þeim árum var sr. Björn prestur í
Bandaríkjunum — í Minnesota, — og
þar voru þessir 3 fyrstu árgangar
prentaðir. Er því Kennarinn fyrsta, —
og eitt af þremur blöðum, — mér vit-
anlega, sem komið hafa út í Banda-
ríkjunum á íslenzku máli. Næst á eftir
Kennaranum kom mánaðarblaðið „Vín-
land“, almennt fréttablað, mjög vand-
að bæöi að efni og frágangi. Það kom
út í 6 ár, — 1902 — 1908, — og var
sr. Björn meðritstjóri þess tvö fyrstu
árin. — Þriðja blaðiö hét „Prédikar-
inn“, prentað í New York árið 1914-
Það var sértrúarmálgagn — og kom
aðeins eitt tölublað af því. — Dr. Björn
B. Jónsson lézt árið 1938, eftir 45
ára samfellda prestsþjónustu. —•
má nefna sr. Kristin K. Ólafsson, ■
mikilhæfan starfsmann og trúan hlut-
verki sínu. Hann lézt í hárri elli árið
1961, — sr. Guttormur Guttormsson
lézt árið 1956, — sr. Sigurður Ólafsson
andaðist 1961, og árið 1959 andaðist
valmennið sr. Runólfur Marteinsson,
— náfrændi sr. Jóns Bjarnasonar,
og höfundur stórmerkrar ævisögn
hans, sem kom út á Akureyri árið
1969. — Og að lokum skal þess getið,
að frá 1903— 1925, þjónaði sr. FriðriK
Hallgrímsson söfnuðum vestan hafs>
við miklar vinsældir og traust,
bæði meðal starfsbræðra sinna
innan safnaðanna. — Hér skal nú lok'
ið kynningu kirkjufélagspresta, Þ°lt
enn séu margir ónefndir, sem vissu-
lega eru þess verðir, að þeirra vserj
sérstaklega minnzt. — Og þá er ekK'
síður vert að hafa í huga, að prestarnír
stóðu ekki einir í störfum sínum. —
270