Kirkjuritið - 01.12.1976, Page 52

Kirkjuritið - 01.12.1976, Page 52
blessaði konungur. „Ég segi yður, ef þessir þegðu, mundu steinarnir hrópa.“ Þann dag varð margur ósáttur við hann. Og æ síðan hafa uppi verið menn, sem vildu færa margt til betri vegar, klæða kristinn dóm í hrjálegri búning. Morgunblaðsmenn virðast nú hafa tekið upp slíka umbótastefnu. Síra Bolli Gústafsson í Laufási hafði þann starfa með höndum að rita sunnudagahugvekjur fyrir Morgun- blaðið um þær mundir, er mest gekk á út af prestastefnunni margnefndu. Hann er ritsnjall maður og gæddur hóg- látri kímni, enda fórst honum allt vel. En frá því hann lét af hugvekjusmíð- inni, hafa ekki aðrir komizt þar að en þeir, er fylgdu ,,umbótastefnu“ blaðs- ins. En þeir fá þar einnig góðan ,,dóm“ og háa einkunn. Kveður þar mest að síra Jóni Auðuns, fyrrum dómprófasti, enda er hann manna kunnastur að því að lúskra á kreddu- mönnum og ýmsum meginatriðum kristinnar kenningar, svo og ýmsum forynjum, er hann sá þar í kring, — vígreifur eins og Dón Kíkóti. í mjög svo hentugan tíma kom og hvalreki mikill á fjörur Morgunblaðsins, því að síra Jón birti í vetur æviminningar sínar og greinargerð fyrir lífsskoðun sinni ásamt palladómum nokkrum um samferðamenn. Er ekki að orðlengja að lesendum Morgunblaðsins má nú Ijóst vera, að þvílík bók hefur ekki lengi komið út á íslandi. Ef rétt er munað, fóru að birtast kaflar úr bók þessari í Morgunblaði nokkru áður en hún kom út. Var til þess varið heilum síðum eða opnum blaðsins. Hvort sem það var hending eða ekki, voru m. a. til valdir kaflar um fólk, sem á sinni tíð hafði verið í forystu fyrir kristilegum félögum, er prófastinum var heldur í nöp við. Nú var þetta fólk horfið af þessum heimi og óhætt að segja um það, hvað sem var, jafnvel láta í skína, að það hefði nú verið blendið í trúnni og ekki góð- mennskan einber. Dr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup, var einn þeirra tilnefndu, forveri bókarhöfundar í embætti dóm- prófasts og um skeið samverkamaður hans við Dómkirkjuna. Þó tók nú fyrst í hnjúkana, þegar ritdómur um bókina kom í Morgun- blaði. Þar dugði ekki minna en einar fjórar eða fimm síður af aikunnri mælgi Guðmundar Hagalíns. Virtist hann sem bergnuminn, enda skorti ekki lýsingarorð í dóminn þann. Auk þess, að bókarefnið var þar mjög svo endursagt, svo sem háttur er Hagalíns, voru þar innan um og saman við nokkrar mergjaðar athugasemdir eða íhuganir frá eigin brjósti rithöfundar- ins um kristnilíf Norðmanna, Lýðhá- skólann í Skálholti, forstöðumann hans og fleira. Ekki var þess að neinu getið, hversu rithöfundurinn hefði hagað út- tekt sinni á kristni frænda vorra í Aust- urvegi, ekki orð um hversu oft hann hefði lagt leið sína í kirkjur þar, hversu marga predikara heyrt, hversu marga trúaða hann hefði verið samvistum við til að athuga trúrækni þeirra og dagfar- Nei, hér var einungis verið að éta eitt' hvað upp eftir Arnúlfi Överland, reynt að stæla gamla og heldur óhrjáleg8 skrípamynd eftir hann. Það tók því Þá- Aðrar athugasemdir úr ritdóminum er líklega bezt að leiða hjá sér. Ein' hver var raunar að segja, að gamia 290

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.