Kirkjuritið - 01.12.1976, Blaðsíða 58
......og erlendis
Máni frá Kóreu
„Góðir áheyrendur! Sé einhver sjúkur
á heimili yðar, þarf þá ekki að kalla á
lækni? Ég er sendur af Guði til þess
að veita Bandaríkjunum læknishjálp. i
þrjú ár hefi ég vakinn og sofinn birt
bandarískri æsku nýja opinberun frá
Guði.“
Svo mælir sjálfskipaður frelsari frá
Kóreu, Sun Myung Moon að nafni, 56
ára að aldri. Hann stendur í ræðustól
á Yankee-íþróttavellinum í New York
í júní 1976. Hann er forsprakki sam-
taka, sem hafa einingu heimskristn-
innar á stefnuskrá sinni. Hann hafði
búist við 200 þúsund manns á sam-
komu sína, en kringum 25 þúsund
komu. Áður en hún hófst, höfðu um
1500 ungra fylgjenda hans farið skrúð-
göngu frá Harlem til Wall Street með
lúðrablæstri og söng, límt á veggi aug-
lýsingaspjöld með mynd af Moon og
útbýtt frímiðum á hátíðahöldin.
Ræða Moons stóð fulla klukkustund.
Margir yfirgáfu samkomuna áður henni
lyki. Túlkur sneri máli hans á ensku
jafnóðum. Á götunum fyrir utan völlinn
höfðu andstæðingar Moons safnast
saman með kröfuspjöld, sem á var
letrað meðal annars: NIÐUR MEÐ
GRÖÐA-SPÁMANNINN! Háværastir í
þessum hópi voru foreldrar ungra
lærisveina Moons. Og þeir höfðu ærna
296
Sun Myung Moon predikar.
ástæðu til mótmæla, því að börnin slíta
að mestu sambandi við foreldra sína,
er þau ganga í trúflokk Moons.
Moon telur sér um 30 þúsund með-
haldsmenn í Bandaríkjunum, 300 þús-
undir í Suður-Kóreu og 200 þúsundir
í Japan. Og í Evrópu mun trúflokki
hans hafa aukist mjög ásmegin síð-
ustu ár. Það er talið, að Moonistar i
Vestur-Þýskalandi séu um 6000, 1
Frakklandi 1000.
AS selja Ginseng-te á götunum.
Stuttklipptir, frísklegir unglingarni1'
minntu marga á nasista, þar sem Þe,r
marséruðu syngjandi um göturnar. En
í kenningum Moons verður líka var