Kirkjuritið - 01.12.1976, Side 60
Moons hafa afhent söfnuðinum banka-
reikninga sína. Aðrir hafa fúslega yfir-
gefið fjölskyldur sínar. Þeir dýrka
Moon og konu hans, og biðja enda
til þeirra sem sinna „sönnu foreldra“.
Loks eru þeir, sem telja, að Moon sé
annar Messías, fremri Jesú Kristi.
Sumir vilja sýna Moonistum um-
burðarlyndi. „Við þyrftum að fá slíka
bylgju af áhuga inn fyrir veggi okkar
eigin kirkna“, segir formaður Kirkju-
ráðs New York-borgar. Moonistum hef-
ur þó ekki verið veitt aðild að ráðinu.
Þess verður ekki vart, að iðja
Moonista beri nokkurn annan arð en
þann, sem hafnar í fjárhirslum Moons.
Foreldrar hafa þungar áhyggjur af
börnum sínum í höndum Moons. Ungl-
ingarnir eru ekki svipur hjá sjón, líkj-
ast heist svefngenglum. Nokkrir for-
eldrar hafa gripið til ólöglegra „mann-
rána“ til þess að heimta aftur börn sín
úr helju. Síðan hefur reynst nauðsyn-
legt að hjálpa unglingunum að aðlag-
ast aftur fyrra lífi og háttum.
Maður er nefndur Ted Patrick, fyrr-
um aðstoðarmaður Ronalds Reagan,
ríkisstjóra í Kaliforníu. Sá mun hafa
sótt um 1000 unglinga í greipar Moon-
ista og fleiri sértrúarsafnaða. Viðtali
hans við unga flugfreyju, sem gekk í
hóp Moons, er svo lýst: „Hún hegð-
aði sér eins og óþægur krakki, söng
hástöfum í bílnum, til þess að yfir-
gnæfa það, sem sagt var við hana.
Þegar Patrick reyndi að ávarpa hana,
söngiaði hún, stakk fingrunum í eyru
sér og hélt blaði fyrir andlitið. Hún
vildi umfram allt ekki hlusta."
Í Frakklandi og Vestur-Þýskalandi
hafa menn vaxandi áhyggjur af trú-
boði Moons. Ungur Japani hætti ný-
298
Foreldrar varaðir við
verið menntaskólanámi og fór að selJa
te á götum Tokyo-borgar. Faðir hans
stofnaði þá foreldrafélag unglinga, selTI
ánetjast höfðu Moon, og sótti síðan
son sinn í hendur safnaðarins.
Hjónabandið ekki gilt, fyrr en að
afloknum hreinsunarsiðum.
Sun Myung Moon fæddist í Chon9Ju
Gun í Norður-Kóreu 1920. Foreldi*
hans tilheyrðu öldungakirkjunni. Mo° ^
sótti ungur samkomur hvítasunnn'
manna. Á páskadag 1936 segir han
Jesú hafa birst sér og falið sér að u ^
komna hjálpræðisverk Messías^
mannkyni til handa. Moon kvsen
árið 1944, en yfirgaf vanfæra ken