Kirkjuritið - 01.12.1976, Page 63
ÞÁTTUR UM GUÐFRÆÐI
ARTICULI CHRISTIANAE DOCTRINAE
MflRTIN LUTHER:
Þýzk messa og skipan guðspjónustu 1526
Þýðing og athugasemdir eftir Kristján Búason
Formáli Marteins Lúthers
^yrst og fremst vil ég vinsamlegast
^iðja Guð og alla þá, sem kunna að
sJá þessa skipan guðsþjónustunnar
eða vilja fylgja henni, að þeir geri
hvorki úr henni þvingandi lögmál né
fjötra eða hefti samvizku nokkurs
^anns með henni, heldur noti hana,
eftir því sem þeim fellur hún, sam-
kv*mt frelsi kristins manns á þann
hátt, þar sem og þegar aðstæður leyfa
°9 krefjast. Vér viljum ekki ýta undir
há skoðun, að vér séum öðrum fremri
1 Þessum efnum eða viljum ríkja með
lö9rnálum. En knúið er á úr öllum átt-
UrTi eftir þýzkri messu og guðsþjón-
Uste, og mikið er kvartað yfir og
^eykslazt á margbreytileik nýju mess-
unnar. Sumir vinna af góðum ásetn-
ln9i, en aðrir af löngun til að koma
með eitthvað nýtt, láta Ijós sitt skína
^eðal annarra og sýna sig sæmilega
snillinga. En svo fer hvarvetna hinu
r'stna frelsi, að fáir nota það nema
ei9in lystisemda eða gagns og ekki
til Guðs dýrðar og náunganum til góðs.
Enda þótt sérhverjum sé gefið að lúta
samvizku sinni, hvernig hann noti slíkt
frelsi, og engum sé heimilt að varna
því eða banna það, þá verður að gæta
þess, að frelsið er og á að vera í
þjónustu kærleikans og náungans. Þar
sem menn hneykslast eða verða ráð-
villtir vegna margs konar siða, þá er-
um vér í sannleika skyldugir að draga
úr frelsinu eins mikið og mögulegt er,
bæta við og fella úr, svo að fólk hafi
gagn af oss, en hneykslist ekki á oss.
Þar sem þessi ytri skipan skiptir ekki
miklu máli vegna samvizku vorrar fyrir
Guði, en getur þó verið náunganum
gagnleg, þá skulum vér samkvæmt
kærleikanum, eins og Heilagur Páll
kennir (I. Kor. 1:10), leitast við að vera
með sama hugarfari eins og bezt verð-
ur á kosið, fylgja sömu háttum og at-
ferli, svo sem kristnir hafa eina og
sömu skírn og eitt og sama altaris-
sakramenti af Guði hlotið og ekki sér-
hver af ólíkri gerð. Þó fer ég ekki fram
á, að þeir, sem þegar hafa góða skip-
301