Kirkjuritið - 01.09.1977, Page 34

Kirkjuritið - 01.09.1977, Page 34
Þú manst eftir Englendingnum, sem skrifaði bók um „God’s frozen pe- ople“? — Hinn frosni Guðs lýður, — gaddaði lýður. Síra Sigurður bregður á þá frægu og meinlegu gamansemi sína. — Þannig hafa söfnuðir okkar verið. Trú og trúfesti einstaklinga höfum við allir reynt, en félagsleg vitund er varla innan kirkjunnar. Og hana verðum við að fá. En hún fæst ekki nema með því, að leikmenn séu nýttir. Ég álít, að kirkjan verði að fara að vinna að því að veita þvi fólki fræðslu, sem vill taka þátt í starfinu. Það þarf að hafa sinn myndugleika. Eins þarf það náttúrlega líka að hafa ákveðið sjálfræði, svo að það sé ekki algjörlega eins og þjónar prestsins. Leikmenn þurfa sitt svigrúm og sína ábyrgð innan safn- aðarins, eins og héruðin þurfa sitt svig- rúm innan biskupsdæmisins, svo að þau séu ekki aðeins eins og þjó^ biskupsins. — Þú telur sjálfsagt ,að biskup koiT" í Skálholt? — Alveg sjálfsagt. Það er ekki rómantík. Það getur haft óhemjule^ strategíska þýðingu í framtíðinni. vitum aldrei, hvað framtíðin ber, skauti sínu. Hún getur borið þá óbú legustu hluti í skauti sínu. Þess ve9r£1 er sjálfsagt að stefna að því, að biskúP hafi hér aðsetur. Ég tel stóran mun á því, hvað PreS ar skilja þetta betur nú en fyrir fjeílJ tíu árum. Fjöldi presta er nú s0nn færður í þessu efni. En það eru íá'r sem vilja hafa sig í frammi, Þvl prestar eru því vanir að líta kall s' sem sinn sérstaka afskammtaða ve,| vang. En þetta er hvorki einK®11'. biskups né presta, heldur mál ^'r unnar allrar, safnaðanna í landif1"' G. Ól. Ól. skráS1- 192

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.