Kirkjuritið - 01.09.1977, Síða 70
ÞÁTTUR UM GUDFRÆÐI
ARTICULI CHRISTIANAE DOCTRINAE
Síra Kristján Búason, dósent:
Kröfur nútímans til prestanna
Efni það, sem oss hefur verið fengið
til umræðu, nefnist „Kröfur nútímans
til prestanna“.
Við fyrstu sýn hlýtur það þegar að
vekja áhuga vorn, þar sem það snertir
svo mjög vort eigið lífsstarf.
Það hafa orðið geysimiklar breyt-
ingar með þjóð vorri hina síðustu ára-
tugi, sem svo margvíslega grípa inn
á starfssvið vor prestanna, og setja
oss í nýjar og áður óþekktar aðstæður
með þjóð vorri.
Við nánari íhugun finnum vér, að
þetta efni má taka a. m. k. á tvo vegu.
Hinn fyrri er sá að leitast við að gera
sér grein fyrir, hvað samtíð vor, fólkið,
ætlast til af oss. En við nánari athug-
un verður oss Ijóst, að það er nær
vonlaust verk, því að það er svo
breytilegt frá einni persónu til ann-
arrar, enda þótt mjög fróðlegt væri
að kynnast skoðunum fólks á því,
hvað prestum beri að vera og gera.
En það mun ekki hafa vakað fyrir
þeim, sem mótuðu efnið, heldur hitt
að gera grein fyrir kröfum þeim, ser°r
prestsembættiS gerir til prestsins 1
hinu islenzka þjóSfélagi nútímans■
Þetta efni er svo umfangsmik^’
að því verða ekki gerð nein ýtarl®9
skil í framsöguerindi sem þessu.
Efnið gerir í fyrsta lagi kröfu
þess að gerð sé grein fyrir skilninð1
kirkju vorrar, hinnar evangelisk-lú*
hersku kirkju, á prestsembættinu.
í öðru lagi þarf að gera grein fyr"
helztu einkennum og breytingum nU
tímans, þ. e. þess þjóðfélags, sem ve
búum við í dag, svo og áhrifum Þe5S
á starf vort.
í þriðja lagi felst í því stutt greinar
gerð um þær kröfur, sem prests
embættið gerir til prestsins í hinu |S
lenska þjóðfélagi nútímans á grLin
velli þess, sem á undan er talið-
Það, sem hér fer á eftir, er tétse^
leg tilraun til þess að svara nokkrU
þeim spurningum, sem efnið Ie9^
fyrir oss.
228