Leiftur - 01.01.1915, Síða 6

Leiftur - 01.01.1915, Síða 6
4 L E I F T U H Þó að í rit þetta verði teknar ýmsar vel valdar sagnir, sem áður hafa hér og þar verið færðar i letur, þá verður þó reynt að hafa sem mest af nýjum sögn- um og áður óprentuðum. Margir skoða allar þjóðsagnir fánýti og heimsku. Til eru lika þeir, sem fyrirlíta dulrænar sagnir eða jafnvel liata. Álíta að af þeim leiði hjátrú og spilling í trúar- efnum og fleiru. Flestir hugsandi menn sjá þó vel, hve mikið gildi þjóðsagnirnar hal'a fyrir menningarsögu þjóðarinnar, og þá engu síður fyrir sálarfræðina. l3að er fróðlegt að athuga, hverjum breytingum trú, hug- myndir, listsmekkur o. íl. tekur í skáldskap og hug- sjónum þjóðanna við myndun og meðferð þjóðsagn- anna. .íónas kveður: »Flúinn er dvergur, dáin hamra- tröll«, en eins má segja um margt fleira. Tilberarnir eða gömlu snakkarnir eru einnig dauðir, sömuleiðis íinngálkn og ófreskjur, skofl'ín og urðarmáni og svo margt lleira. Enginn á nú orðið Papeyjarbuxur eða Finnabuxur né viðlika þarfagripi, og mannsýstruna hafa allir gleymt að hagnýla sér. í3á eru heldur eigi lengur til jafnskörulegir piltar sem þeir Glámur sálugi, Skelj- ungur, Klaufi, Þórólfur bægifótur og margir aðrir þeirra jafnokar. Þorgeirsboli, Húsavíkur-Lalli, Skottur og Mór- ar og fleiri þesskonar hjú, hafa einnig ílest, að meira eða minna leyti, gengið sér til húðarinnar. Ætlunar- verki þeirra er og ilestra lokið, sem var að fylgja viss- um ættum i 7.—9. lið. Og útlit er fyrir, að engir ætli að verða til að fylla í skörðin; enda kann nú enginn lengur að vekja upp draug svo að mynd sé á. Það er nú svona. »Öllu fer aftur«, sagði karlinn. »Útilegumenn við Ódáðahraun« eru og horfnir. Huldufólkið virðist einnig í þann veginn að Jlýja landið. Er það illa farið, því að margt var þó vel um það sagt. Þá eru og ílestir galdramennirnir liðnir undir lok. Sumir þeirra voru þó »karlar í krapinu« og vissu »lengra nefi sinu«. Lengi hafa fleslir reynt að herja niður alt, sem dul- rænl virtist. Var það dæml sem »úalandi« hjátrú. En i

x

Leiftur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.