Leiftur

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Leiftur - 01.01.1915, Qupperneq 46

Leiftur - 01.01.1915, Qupperneq 46
44 LEIFTUR Ansaði hún því svo: »Jú, liún heíir löngum falleg; verið«. Að nokkrum dögum liðnum var eg á gangi niður í svonefndum Básum í Litla-Hraunslandi. Sá eg þá hvar jarpskjótta tryppið Gránu stendur eitt og þykir mér það kynlegt og geng til þess. Sá eg þá hvar Grána liggur dauð hjá skjótta tryppinu með brúnt liestfolald í burð- arliðnum. Engin hross koma í Hraunslöndin nema þau sem eiga heima þar. Ekkert brúnt hestfolald var framar að sjá í hrossum okkar á Hraununum þetta vor, enda þykist eg ekkert skýrara séð hafa en Gránu með brúna hestfolaldinu sínu vakra. Hvort Grána var dauð, þegar eg sá hana, eða ekki, er ekki hægt að segja með vissu, eða brúna folalþið hafi verið missýning eða feigðarboði hryssunnar. Eg hef talið mig allglöggva á hross, enda var þetta engin skyndisjón er eg rak hana að mér virtist langa leið. En er svona fór, taldi eg vafalaust, að Grána hefði á þessari stundu, er eg þóttist reka hana, verið dauð og eg hefði að eins séð svip hennar. Svipur Mósa. Sögn Bjarna Valdasonar í Skutulsey. Vorið 1889 seldi Pórarinn bóndi Fjeldsted á Ökrum Thor Jénsen í Borgarnesi hest móálóttan að lit. Hafði Thor kaupmaður hest þennan á Ánabrekku. Þar hafði hann útibú. Hesturinn hvarf skyndilega frá Ánabrekku í snjóhreli, er gerði fyrri hluta vetrar, og var ætlað að hann hefði leitað til fyrri stöðva út að Ökrum. Um það leyti er Mósi hvarf, komum við þrír á Ökr- um út um kveld, eg, Jón Sigurðsson, nú bóndi á Ökr- um, og Eyjólfur Jónsson, þá vinnumaður á Ökrum. Bjart var úti, því tunglsljós var. Sjáum við þá hvar Mósi er kominn. Stóð hann á Akrahlaði. Gengum við

x

Leiftur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.