Nýjar kvöldvökur - 01.10.1934, Síða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1934, Síða 8
150 NÝJAR KVÖLDVÖKUR úr tösku sinni og vösum heilmarga pakka og pinkla. úr töskunni dró hapn upp pottflösku meö rjóma og setti hana gætilega í hornið undir borðinu. Því- næst dró hann upp fimm stór vínar- brauð úr hægri jakkavasa sínum, og úr þeim vinstri stóran poka með smurðu brauði með ýmsu góðgæti ofan á. Við þetta bættist svo poki með bjúgaldinum, nokkur epli, vindlingapakki, og að lok- um heljarmikil munnharpa, tvöföld. Þá var affermingunni lokið. — Svo raðaði hann öllu vendilega í skrifborðsskúffuna, tók upp hraðritunarblokkir sínar og yddi þrjá blýanta. »Tilbúinn!« Bjöm Bergss stóð upp og tók af sér klafann. Svo gaf hann hraðritaranum nauðsynlegar fyrirskipanir og fylgdi síð- an Ásgeiri inn á skrifstofu sína, settist niður og skrifaði stundarkorn, en talaði samt við Ásgeir á meðan. »Jæja, lasm’. Hvernig er lífið á litinn núna?« »0 — það er alveg himinblátt!« svar- aði Ásgeir og hló við. »Við förum áleið- is til Gautaborgar á morgun til að sækja »Júpíter«. Og ég fékk 100 krónur fyrir- fram! — Ég hélt ekki að þeir þyrðu«. »Ég bað Sólemndal skrifstofustjóra um það. Ég hélt, að þú kynnir að þurfa þess með«. »Já, þakka þér kærlega fyrir! Það var inndælt!« »Heyrðu, Ásgeir. Raulaðu nú einu sinni enn »Sjá roðann á hnjúkunum háu«, en lágt, svo þú truflir mig ekki. Mig lang- ar til að læra lagið, áður en þú ferð. — Það er ekki víst, hvenær við hittumst aftur. — Það eru svo margar tafir og torfærur nú á tímum«. »0, blessaður vertu! Við komum hing- að aftur á sunnudag og leggjum af stað í fyrstu Englandsferðina kl. 10 á mánu- dagskvöldið. Það er þó ekki vist, að ég fái tíma til að hitta þig, fyrr en við komum aftur frá Englandi. En svo hitti ég þig vikulega eftir það. »Við liggjum hér alltaf 2—3 daga milli ferða«. »Well. — Raulaðu nú lagið hægt og greinilega!« Ásgeir hafði mjög laglega söngrödd. Dökkan og blæþýðan baryton. Hann var' söngvinn og söngelskur mjög. — Hafði yndi af að syngja — eins og flestir land- ar erlendis, því — þá brúar söngurinn hugarheimana til hvítra fjalla — um bláa geimana. Björn Bergss blístraði lagið lágt með söngnum, en kepptist þó við að skrifa. Tvær setjaravélar bruddu handritin í næstu stofu, eins og fjósamaður munntó- bak -— og máttu aldrei japla tómum munni, því prentaralaunin voru 50 pct. hærri fyrir næturvinnu. »Þakka þér fyrir! Nú kann ég lagið. Og nú verðum við að fá okkur kaffisopa að skilnaði. En þú verður að drekka það hérna, því ég má ekki sleppa blýantin- um hérna megin miðnættis. Ég skal smeygja smágrein um »Júpíter« — og þig inn í bæjarfréttirnar í fyrramálið! Nú hringi ég eftir kaffi«. »Halló! — Kaffistofa, Torginu nr. 1. — Já, »Dagblaðið« hérna. Sendið mér í hvellinum kaffi handa tveimur og eitt- hvað gott með því! •— Já, .— nýjar rjómavöfflur og jarðeplakökur með nýju smjöri? Ágætt! Fyrirtak! Þér eruð sann- arleg perla, fröken Rein! — Já, eins- konar kvöldverður. Þökk, fröken Rein. Þökk! Þetta kemur strax, Ásgeir. Dragðu nú lausaborðið þarna hingað að skrifborð- inu og breiddu á það eina af stóru papp- írsörkunum þarna! Láttu nú sjá, að þú berir nafn með rentu: Waiter, first class! — Annars máttu vel raula lagið einu sinni enn, meðan kaffið er að koma!« —

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.