Ný dagsbrún - 01.01.1904, Page 33
TILGANGUR HINS (JNíTARISKA KVRKJUFJELAGS. 2g
II.
TRdAK- Únítariskir menn þurfa einnig að f-
HUGMVNDIR. huga hvcrjar af þeim trúarhugmyndum,
sem þeim eru kunnar, em skynsamlegar, lifandi og göfg-
andi. GjÖri menn sjer það ekkí ljóst, hvaða trftarhug-
myndir það eru, scm þeir hafa ásett sjer að viðhalda,
verða þeir áhugalausir fyrir viðhaldi nokkurrar þeirra.
Mcð þvf að fliuga einnig hinar trftarhugmyndirnar, sem
mönnum kunna að finnast óskynsamlegar, eða dauðar, eða
niðurlægjandi, geta þeir fljótast komist á rjettan rekspöl
með að bœta 6r skortinum, og vekja betri hugmyndir f
þeirra stað.
Vjer skulum þá fyrst af öllu minnast þess, að það er
ekki vert f daglegu tali, að blanda saman þvf, sem maður
trúir og þvf sem maður þekkir. Þar sem þekking endar,
þar byrjar trft. Það, sem vjer höfum sjálfir skoðað, eða
það, sem vjer emm fullvissir um að aðrir menn hafi skoð-
að, það álftum vjer að mennirnir þekki. Þar, sem vjer
verðum að getaosstilf eyðurnar, eðaþar, sem vjer verðum
að fmynda oss upphafið eða endirinn á þeim ferli, sem þekk-
ing mannanna nær til, þar skipa trftarhugmyndir vorar
þau sæti, scm auð eru á hugmyndasviði þekkingar vorrar.
Þegar einhver maður er svo sannfærður um að
trftarhugmyndir sínar sje jafn áreiðanlegar eins og þel.k-
ingarhugmyndir sfnar, að hann er óhikandi f því að leggja
Iff sitt í vcð fyrir rjetlmæti þeirra, þá hefir sá maður ó-
bifanlegt traust á þcim trftarhugmyndum, sem þar er um
að ræða. Slíkar trftarhugmyndir eru á hæsta stigi Iifandi
trftarhugmyndir, en það er mjög oft að þær cru hvorki
skynsamlegar eða göfgandi fyrir þvf. Þegar Jefta, dóm-
ari ísraelsmanna, hjet Jehóva því, sjertil sigursældar, að
gefa honum það, sem fyrst af öllum lifandi skepnum mœtti
sjer þegar hann kœmi hcim, þá var það vitanlcga trft á