Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 46
XII
AUGLÝSINGAR
N, Kv»
GÓÐAR BÆKUR, EN ÓDÝRAR
Eftirtaldar bœkur eru prentaðar fyrir núverandi ófrið og hafa ekki verið
hœkkaðar i verði. Verð þeirra er þvi langt undir hálfvirði:
Saga Eiríks Magnússonar í Cambridge,
eftir dr. Stefán Einarsson. Bókin er 352 bls., prentuð á ágætan pappír. í
henni er rithandavsýnishorn Eiríks og nokkrar myndir af honum og konu
hans. Kostar aðeins 8 krónur. (Myndi kosta með því verðlagi, sem nú er á
bókum, 40—50 krónur.)
Samtíðarmenn í spéspegli.
Árið 1938 kom til Reykjavíkur ungverskur listamaður, Strobl István, en
kallaði sig hér á landi Stefán Stróbl, svo að auðveldara væri að nefna hann.
Stróbl leggur aðallega stund á skopteikningar. Teiknaði hann hér mikinn
fjölda manna og hélt sýningu jafnframt á verkum sínum. í bókinni Sam-
tíðarmenn í spéspegli er birtur fjöldi þessara teikninga og eru flestar
þeirra ágæt listaverk. Eftir nokkur ár verður þetta ein af fágætustu bókum
hér á landi. Kostar aðeins 8 krónur. Fá eintök eftir óseld.
Skíðaslóðir,
ferðaminningar eftir norska skíðakappann Sigmund Ruud. Veturinn 1939
kom norski skíðakappinn Birger Ruud hingað til lands á vegum skíðafé-
laganna og eignaðiSt hér marga vini. Þeir bræður, Sigmundur og Birger,
eru mjög vílförlir og hafa farið víða um heim til þess að leiðbeina í skíða-
íþróttinni. Bókin er endurminningar frá þessum ferðum. Bókin er röskar
150 bls., prentuð á mjög góðan pappír með fjölda mynda, og kostar aðeins
7 krónttr heft og 9 krónur bundin.
Lögreglan í Reykjavík.
Gefið út að tilhlutun lögreglustjórnarinnar. Þetta er saga lögreglunnar í
Reykjavík með fjölda mynda. Þar má meðal annars sjá hvernig einkennis-
búningar lögregluþjónanna hafa breyt/t frá fyrstu tíð og til þessa dags.
Bókin er 176 bls. í stóru broti og kostar aðeins 10 krónur.
Ilmur daganna.
Skáldsaga eftir Guðmund Daníelsson frá Guttormshaga. 192 bls. Heft
kr. 4.50, í bandi kr. 6.50.
Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
Í^ÍÍSSÍSÍSÍ«$ÍSSS$ÍSS$SSSSSSSÍSSÍ$SÍS$ÍSSSSSSSS$$ÍSS3S$SSSSSSÍSÍSSSS{SS$ÍS$$Í«SSÍ«Í$ÍSS«$Í$$S5«ÍSÍ$S«