Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 50

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 50
132 ALÞÝÐUMENNINGIN OG BÓKMENNTIRNAR N. Kv. að ekki séu þarna nærri því öll liðgeng skáld Þingeyjarsýslu. Allir eru þeir almúga- fólk, karlar og konur, sem neyta síns brauðs í sveita síns andlitis. Mun nú verða gripið niður í bókina á ýmsum stöðum til þess að sýna lrvað þar er að finna. En það er lesand- inn beðinn að hafa hugfast, að þetta er ekki ritdómur um hana, og alls ekki unnt að nefna hér jafnvel alla hina beztu höfunda, þaðan af síður alla þá fimmtíu, sem eitt- hvað hafa til hennar lagt. Verða höfundar nefndir af nokkru handahófi. Fyrst verður þá fyrir mér Arnfríður Sig- urgeirsdóttir, sem á þarna þrjú kvæði, öll með aðalsmarki þess höfundar, sem er skáld af guðs náð, en ekki eigin ímyndun. Ávarp- ið til Jakobínu Johnson, flutt henni er hún heimsótti átthaga sína fyrir nokkrum ár- uum, er slíkt tilþrifakvæði, innilegt og skörulegt, að til þess eins að fá þá kveðju, var það tilvinnandi að fara alla leið vestan úr Ameríku og norður í Þingeyjarsýslu. Kvæði eins og Týnda soninn yrkja vart nema mikil skáld. enda þótt hún hafi þegar vel gert, fer ekki hjá því, að þessi kona eigi meiri fjársjóði til að gefa þjóð sinni heldur en þau kvæði, sem þarna eru lögð fram. Þegar fregnin um hið sorglega fráfall Geirfinns Þorlákssonar barst út urn landið á síðastliðnum vetri og frá því var skýrt, hvílíkt afbragð ungra manna hann hefði verið, vakti hún sáran söknuð jafnvel hjá okkur, sem aldrei höfðum áður heyrt hans getið; því að slík mannsefnimáþjóðinávallt illa missa, og ætíð sitja einhverjir eftir með blæðandi sár. En margfalt sárari varð þessi harmur, þegar við fengum það að vita, að hinn ungi efnismaður hefði verið sonur þessrar ágætu konu, sem við þekktum þegar af Þingeyskum ljóðum. Slíkur er máttur andans til þess að knýta samúðartengsl án nokkurra persónulegra kynna. Og í bók- menntunum á andinn heimkynni sín. Næstur Arnfríði í bókinni er Árni Sig- urðsson, sem vekur svipaða athygli og sam- úð. Einnig hann hefir fengið eldinn af hæð- urn. Auk þeirra kvæða hans og vísna, sem hér eru, hefi ég fyrir tilstilli góðs vinar fengið að sjá eftir hann jólasálm einn, svo gullfagran, að fleiri munu þeir en ég, sem gjarna rnundu vilja heyra hann sunginn við guðsþjónustur á jólum. Fyrsta kvæði Árna í Þ. Ij. er morgunvísur, listavel kveðnar hringhendur, sem strax vekja athygli les- andans á jm', hve lagið höfundinum er að mála með orðum. Allt sem hann sér, verð- ur að myndum, sem hann málar með hár- vissum dráttum og oft næsta fögrum litum. Hann sér allt með augurn málarans, t. d.: fjöllin mynda. sig í sjá sólarlindum þvegin, og alls staðar er sama dýrlega málverkið, hvert sem hann lítur, á láði og legi: Glitvefsklæðin grundar öll geislaþræðir sauma; langt um græðis leggur völl ljóssins æðastrauma. Alveg er sama um hvað hann yrkir, allt verður það ljóslifandi fyrir augum lesand- ans: Sædjúpið sólstafað bifast líkt svefnþungum barmi, dreymandi dregur það andann við dranga og flúðir. Hið fræga grafletur yfir Oliver Gold- smith í Westminster Abbey segir að „á engu snerti hann svo, að eigi fegraði hann það.“ Eins og Árni Sigurðsson birtist í Þ. lj. á þetta við um hann. Jafnvel inn í það, sem ömurlegt er, dregur hann fegurðina. Þann- ig er það, að þótt Þokufingur þreifi fjalls um brúnir þegar hnígur sól að Ægis barm, og teygi sig svo þaðan niður á láglendið unz þeir hafa dregið sína röku grámyglu yfir allt, þá byrgir þetta þó ekki skáldinu útsýn yfir það, sem varanlegra er: að máttugt heldur vorið um sitt veldi vörðinn bak við úðaþokunótt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.