Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Blaðsíða 60
140
DULRÆNAR SÖGUR
N. Kv.
rætt á, að tegundir þessar hafi nýskapazt
hér.
Það má segja í stuttu máli, að líkur fyrir
náttúrlegri fjölgun plöntutegunda hér eru
litlar. En hinsvegar eru allmiklir möguleik-
ar á því, að tegundir slæðist hingað, og að
eitthvað af þeim ílendist.
Akureyri 6. október 1943.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum.
Dulrænar sögur.
Skráð hefir B. J. HORNFJÖRD.
Draumur.
Það var árið 1902, síðasta sumarið, er
fiskifélagið Eweing 8c Fryer frá Selkirk í
Manitoba hafði úthald sitt við Playgreen
Lake. — Það vatn skerst norðaustur úr
Nelson’s River, um tvær mílur enskar frá
mynni hennar við norðurenda Winnipeg-
vatns. Það er eina áin, er fellur úr Winni-
pegvatni, og rennur hún norður í Hudson-
flóa.
Næsta ár á eftir (1903) flutti ofanritað
félag byggingar sínar til Spider Island, sem
er um 20 mílum sunnar, í norðaustuihorni
Winnipegvatns. Hjá þessu félagi byrjaði
ég að vinna það sumar í Spider Island, það
var mitt fyrsta sumar á vatninu. Yfirmaður
frystihússins þar, Stone Kelly, (Þorsteinn
Þorkelsson) frá Selkirk, sagði mér eftirfylgj-
andisögu: —
Sumarið áður en hann vann hjá Eweing
& Fryer við Playgreen Lake, fórst styrju-
flutningsbátur, er félagið lrafði í ferðum
til Wisky Jack, sem er nær 100 rnílur norð-
ur með Nelson’s River. Það voru þrír menn
á bátnum; einn af þeim drukknaði, en
tveimur varð bjargað. Komið var með líkið
suður til útgerðarstöðvarinnar, svo að það
yrði sent inn til Selkirk með milliferðabátn-
um. Var það látið í frystirúmið. Sá Stone
Kelly um frágang þess þar.
En næstu nótt dreymir Kelly hinn
drukknaða, að hann kæmi til sín og bæri
sig illa yfir því, að ekki færi vel um sig;
mæltist hann til, að hann kæmi rúmi sínu í
lag. Stone Kelly sagði honum, að hann
hefði ekki getað búið betur um hann en
gert hefði verið um kveldið, en sá dáni
sagði, að hann mundi sjá missmíði á því, er
hann kærni þar. —
Um morguninn, áður en gengið var til
morghnmatar (kl. 7), bað Kelly einn af
verkamönnum sínum að koma með sér í
frystihúsið. En er þangað kom, sáu þeir
rerksummerki þess, að laga þyrfti líkið.
Það hafði verið lagt á nokkra tóma fisk-
stampa, en þeir stampar höfðu óskiljanlega
færzt úr lagi. Höfuðið og axlir höfðu færzt
til, svo að höfuðið var nær hálft
út af stampbrúninni. Gengu þeir svo frá lík-
inu og löguðu það, sem ábótavant var, en
ekki gátu þeir áttað sig á, hvernig hefðí
staðið á eða hvaða orsök lægi til grundvall-
ar því, að þessi röskun hafði orðið.
Seinna kom það á daginn, að af einhverri
ástæðu hafði verið skipt um stamp þann,
sem var undir höfði og herðum líksins, en
það vissi Kelly ekkert um fyrr en eftir á.