Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Síða 52

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Síða 52
134 ALÞÝÐUMENNINGIN OG BÓKMENNTIRNAR N. Kv. fyrsta lestur náði föstustum tökum á mér, en það er Lára Árnadóttir. E£ til vill var það fyrir þá sök, hve ég hefi frá barnæsku unnað lýriskum ljóðum, en kvæði Láru ætla ég að séu lýriskari en nokkuð annað í þessari bók. Aðrir eru þarna, sem ná hærri tónum en hún, en enginn þeim er hreinni séu eða þýðari. Og hrein er hún líka og tær heiðríkjan yfir hennar angurblíðu Ijóðum. En ég ætla að láta annan, sem bær- ari var en ég um skáldskap, að dæma, segja frá ljóðum Láru Árnadóttur, og þó ekki þeim, sem í þessari bók eru. Páll J. Árdal segir svo í Nýjum Kvöldvökum 1919: „Af tilviljun fékk ég nýlega að heyra tvö kvæði eftir unga stúlku á Húsavík, Láru Árna- dóttur að nafni. Hún mun hafa ort talsvert, en látið lítið eða ekkert á því bera. Ég fékk leyfi hennar til að birta kvæðin á prenti, og koma þau nú bæði í þessu hefti Kvöld- vaknanna. Kvæðin eru svo gullfalleg, eink- um hið síðara, að mér fannst sjálfsagt að þau ættu að koma fyrir almennings-sjónir. Þau eru látlaus, með ljúfum og léttum blæ; mál og rím ágætt.“ Svo talar hann um annan skáldskap, sem honum þylcir fullmikið bera á, en klykkir síðan út með þessum orðum: „Eftir lestur slíkra kvæða, er það sönn unun og hugarléttir að lesa jafnhugðnæm kvæði eins og þessi tvö eftir ungu skáldkon- una á Húsavík." Við Sigríði Stefánsdóttur er ég ósáttur. Ekki fyrir yrkisefni hennar, né heldur hitt, hvernig hún yrkir, heldur það, hve lítið rúm^hún fyllir í bókinni. Líkt ætla ég að fleirum fari. Til sýnis skal hér tekið eitt er- indi, sem þó er fjarri því að bera a£ hinum öðrum ljóðum hennar: í gærdag kom apríl í alhvítum hjúp; en enginn til vorferða sér. Hvað dvelur það, guð minn, — er leið þess svo löng, sem liggur til íslands frá þér? Við norðursins böm þráum auð þess og yl, og öll okkar skammdegisraun er ár eftir ár bæði grafin og gleymd íyrir gleðilegt sumar í laun. Um Steingrím Baldvinsson getur dómur- inn ekki orðið nema á eina lund, að víst sé hann á meðal hinna fremstu, sem þarna leggja fram skilríki sín, enda er hann einn Jreirra, sem mest eiga þar að vöxtum. Allt mælir hann af spaklegri stillingu, og hver er sá, sem ekki kannast við að hafa verið á fundinum þar sem hann kveður þetta, sem [)(j er hversdagslegast af stökum hans: Varla er fært upp úr vaðlinum hér vitinu höfuð að teygja. Algengust heimska í heiminum er, að hafa ekki vit á að þegja. Af þessum fimmtíu skáldum og hagyrð- ingum, er enginn sá, að ég vildi ekki frem- ur hvetja liann en letja að leggja,rækt við gáfu sína. En Jdó mörg séu enn ótalin, og sum þeirra í fremstu röð, skal nú láta hér staðar numið. Það, sem þegar hefir verið sagt, mun nægileg sönnun þess, að gróður- inn í þessum reit er bæði mikill og góður. Fráleitt Jrarf að gera ráð fyrir, að í nokkru öðru héraði sé hin andlega frjósemi á svo háu stigi sem í Þingeyjarsýslu, en Jró mun víða vera vel í því efni. Er þess mjög að óska, að takast mætti að fá nútíðarkveðskap annarra héraða fram í dagsljósið. Þyrfti að koma út fleiri Ijóðasöfnum með svipuðum hætti, og bersýnilega væri það æskilegt, að Þingeysk ljóð yrðu sem fyrst gefin út á ný, Jrví að nú þegar mun þessi fyrsta útgáfa óvíða fáanleg. Yrði þá breytt mjög um efni í hinni nýju útgáfu, og því er að treysta, að þá yrðu með þau skáld, sem nú skárust úr leik. Bókinni hefir, eins og sjá má, verið vel tekið, en þó mun það sannleikurinn, að þjóðin sé ekki enn búin til fulls að átta sig á því, hvílíkur viðburður útkoma hennar var í bókmenntum okkar. Af henni er góðra áhrifa að vænta, og engra nema góðra. Og ég ætla, að hver sem hana les, sannfærist um það, að almúginn á íslandi er þess enn

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.