Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 17
N. Kv. FRÁ INGJALDI PRESTI JÓNSSYNI 3 með Ingjaldi presti um hríð, en hvarf þó lieim aftur, að líkindum fyrir áskoranir for- eldra sinna. Höfðu menn það fyrir satt, að hún hefði fellt svo sterkan hug til séra Ingjaldar eftir gistingu hans að Fjöllum, að ekki yndi hún fjarvistum við hann. Má og vera, að þetta tiltæki hennar hafi verið ráðið með þeim, þá er þau hittust á FjöII- um, er þeim gazt vel hvoru að öðru, því að Helga væri hin fríðasta kona, og ágæta-vel að sér til munns og handa. Skömmu eftir jretta varð Helga þunguð, og töldu flestir, að Ingjaldur prestur mundi valdur að. Fékkst þó annar maður að gang- ast við barninu. Var jrað mær, og hlaut nafnið Jóhanna. Giftist hún síðar Gunnari nokkurum, Skagfirðingi, og fluttist með honum til Vesturheims. En sá Gunnar var bróðir Jóhanns hreppstjora í Keldunesi, föður Sigurveiarar, konu Guðmundar á Þór- ólfsstöðum, en jrau voru foreldrar Jóhann- esar, sem nú er kennari á Húsavík og Pál- ínu, konu Snorra Jóhannessonar frá Fells- seli í Kinn. — Helga giftist síðar norður í Kelduhverfi, Ásmundi nokkurum Einars- syni. 5. Frá Guðbjörgu á Sandi. Þá er séra Ingjaldur var í Nesi. bjó bóndi sá á Sandi, jrar í sókninni, er Guðmundur hét, Pétursson, bónda í Mýrarseli, Eiríks- sonar. En kona Guðmundar var Ingibjörg, dóttir Vigfúsar bónda í Naustavík, Þor- steinssonar. — Guðbjörg Itét dóttir þeirra Guðmundar og Ingibjargar. Hún var kvenna fríðust, og vel að sér um marga hluti, glaðlynd og skáldmælt. Felldu jrau brátt hugi saman séra Ingjaldur og Guð- björg, og hélzt vingfengi þeirra, meðan Ingjaldur prestur var í Nesi. Dvaldi hún oftlega í Nesi tímum saman með séra Ingjaldi, og er Jress ekki getið, hversu konu prests hafi líkað. Eitt sinn var það á messudegi, jrá er Helga Gottskálksdóttir frá Fjöllum dvaldi í Nesi, að Guðbjörg kom til kirkju meðal annars messufólks. Mættust þær Helga í bæjardyrum, og hafa þær þá efalaust haft spurnir hvor af annarri. Mælti Guðbjörg til Helgu: „Sæl vert þú, jómfrú!“ En Helga svaraði: „Svo segjurn. við hvor um aðra“. Ekki er getið annarra viðskipta þeirra. Þau Ingjaldur prestur og Guðhjörg skipt- ust á Ijóðabréfum, og munu Jrau nú týnd, nema Jressi vísa Guðbjargar til Ingjaldar prests: Meðan blóðið hjarta heitt hrærir líf í æðum, mín skal góða gæzkan veitt glansa móðu Tý óleitt. Svo lauk viðkynningu þeirra, séra Ingjaldar og Guðbjargar, að aldrei áttu jrau barn saman. Síðar, er Guðbjörg var vistum á Grenjað- arstað, komst hún í kvnni við Pál gullsmið, Pálsson, Sigurðssonar. SáPállSigurðssonvar bróðir Valgerðar, konu Hallgríms bónda á Ljósavatni; en Jreirra dóttir var Þuríður, kona séra Jóns í Reykjahlíð, Þorsteinssonar, ættföður Reykjahlíðarættarinnar síðari. Þau Páll og Guðbjörg eignuðust dóttur þá, er Páh'na hét, og lengi var á Húsavíkur- bakka og dó jrar. Hennar maður var Sigurð- ur Sveinbjörnsson, og var þeirra sonur Fló- vent Sigurðsson á Árbakka, er drukknaði í Botnsvatni, faðir Jreirra Alberts, Helga og Jóns Flóventssona, — og fleiri voru ]Dau systkin. Síðar giftist Guðbjörg Guðmundsdóttir Jónatan nokkrum, eyfirzkum manni. Var hann sönggefinn, og lék á langspil. Flutt- ust þau út í Grímsey, og var Guðbjörg Jrar ljósmóðir. Þeirra sonur var Baldvin, faðir Kristjáns Baldvinssonar, sem vinnumaður var í Torfunesi, og víðar í Kinn. 6. Frá Guðmundi á Fjalli og Ingjaldi presti. Þeir voru góðkunningjar séra Ingjaldur og Guðmundur,'er þá bjó á Fjalli, sonur l*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.