Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 36

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 36
22 HUGLEIÐINGAR UM BÆKUR N. Kv. þess eins að fá yfirborðsþekkingu á efni þeirra, heldur var það sanni nær, að menn lærðu það, er þeir lásu. Þessi kapplestur hafði að vísu sína ókosti, því að margt var það misjafnt að gæðum, sem á boðstólum var, en bókahungrið spurði ekki að því. Og einn kostur fylgdi þessu, menn vöndust á að lesa vel, þeir urðu gagnkunnugir efni bókanna, og þeir ræddu efnið sín á milli, dæmdu um söguhetjur og leituðust við að skapa sér sjálfstæða skoðun á efni bókarinnar. Að vísu hætti sumum til að trúa um of á það, sem stóð á prenti. En allt um það dylst mér ekki, að í þann tíma var bókakostur þjóðarinnar henni rnikil- væg menntalind og þroskaauki. Nú síðustu áratugina hefir mikil breyt- ing orðið á þessum viðhorfum. Bækur eru nú almenningseign, og vandkvæðin engin á afla þeirra. Um leið hafa þær hrapað úr þeim virðingarsessi, sem þær áður skipuðu í hugskoti alþjóðar. Og jafnframt skýtur upp Jreirn skoðunum, að bókin sem bók sé eiginlega lítils virði. Skal þetta rætt nokkru gjörr. Fyrir nokkrum árum létu tveir af mest lesnu rithöfundum landsins til sín heyra um bækur, og viðhorf sitt til þeirra. Það voru þeir Davíð Stefánsson og Halldór Kiljan Laxness. Ég geri ráð fyrir, að fáir hafi veitt þessum ummælum verulega at- hygli, af því að þau voru ekki birt í sérstök- um bókmenntahugleiðingum. En þau eru engu að síður athyglisverð, því að þau end- urspegla viðhorf tveggja lífsstefna eða, ef menn vilja heldur tveggja kynslóða. í bók sinni, Dagleið á fjöllum, kemst H. K. L. svo að orði í greininni um hús, þar sem hann ber saman ,,slæm hús“ og „slæm- ar bækur": ,,Og þegar maður er búinn að lesa þetta, ef maður nennir þá að lesa það, lætur maður bókina í eldinn eða gefur hana á Alþýðubókasafnið, eða það geri ég að minnsta kosti við bækur, þegar ég er búinn að lesa þær.“ Enda þótt höfundurinn í upphafi máls- greinarinnar sé að tala um „slæmar bæk- ur“, þá virðist mér samt undiraldan í um- mælum þessum vera dýpri lítilsvirðing á bókunum og lesendum þeirra, en vænta mætti af hinum óbókhneigðasta manni, hvað þá af mikilvirkum rithöfundi. Og ekki tekur betra við um afstöðu hins hátt- virta höl undar um Alþýðubókasafnið og les- endur bóka, því að liann telurnokkurn veg- inn sama, hvort bókin er í eldinn látin eða gefin bókasafninu, bókin, sem hann varla nennir að lesa og vill ekki eiga, er fullgóð handa þeim, sem safnið nota. Ég býst að vísu við, að þessi orð hafi hrokkið úr penna hins háttvirta höfundar í ógáti. Því að ef þetta væri óbifanleg sannfæring hans, þá mundi hann varla helga sig því starfi að skrifa bækur. En athugum nú ummæii Davíðs Stefáns- sonar í „Sálmi bókasafnarans“ í kvæðasafn- inu Að norðan: „Eg veit ekki neitt, sem ég vildi heldur en veita þeim aðbúð góða, svo grandi þeim hvorki glóandi eldur né guðleysi heimskra þjóða. Eg sá ekki neitt á sjó né landi, er seiðir meira og Ijómar en hugsjónir þeirra, heilagur andi og himneskir leyndardómar". Ég held að erfitt reynist að finna meirí andstæður en liggja í ummælum þessara tveggja skálda, lítilsvirðinguna í orðum Kiljans og lotninguna í kvæði Davíðs. En þarna mætast ekki aðeins tveir menn með ólíkar skoðanir og hugðarefni, þótt báðir helgi sig bóklegri iðju. Heldur koma þar fram, eins og fyrr segir, tvær lífsstefnur, eða viðhorf tveggja kynslóða. í kvæði Davíðs er lýst tilfiriningum og viðhorfi til bókanna hjá þeirri kynslóð, sem fáa átti úrkosti um bókaval og fyrr er getið, og þó enn færra af öllumþeimvélrænuhlut- um, sem einkenna hið daglega líf nútímans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.