Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 42
N. Kv. Bækur. Jón Sörensen: Friöþjóis saga Nansens. íslenzkað hefir Kristín Ólafsdóttir lækn- ir. Útg. Isafoldarprentsmiðja. Reykja- vík 1Q43. Það er alkunna, að fáar bækur eru væn- legri til gagnsemdar en ævisögur ágætis- manna, ef vel eru sagðar. Bók sú, er hér um ræðir, er saga eins hins ágætasta manns, er Norðurlönd hafa alið síðustu mannsaldr- ana. Manns, er sameinaði afburða gáfur, líkamlega hreysti og frábært þolgæði, en var þó umfram allt drengur góður. Frið- þjófur Nansen vann afrek, sem duga myndu til heimsfrægðar, bæði sem land- könnuður, í vísindum, stjórnmálum og mannúðar- og friðarstörfum. Hvar sem hann gekk að verki, voru afrek unnin, og hann var ætíð sigurvegarinn. Honum tókst jafnfarsællega að brjóta sér leið um Græn- landsjökla og ísauðnir norðurhafsins, og að vinna stjórnmálasigra til handa landi sínu og þjóð, og að síðustu til að rétta þeim hjálparhönd, er sárast voru leiknir eftir hildarleik síðustu heimsstyrjaldar. Um þetta allt fáum vér lesið í ævisögu þessari, sem úr kom fyrir síðustu jól. En hún sýnir líka hvers vegna Friðþjófur Nan- sen var svo sigursæll í starfi sínu, „hann bar sigur úr býtum vegna látlausrar þjálfunar, strangrar vinnu og ódrepandi þrautseigju“. Mörgum manni fer svo, sem gæddir eru jafnfjölhæfum gáfum, að hann fer í mola, líf hans verður ekki annað en sundurlaus baugabrot. Friðþjófur Nansen var gæddur þeim skaphafnarstyrk, að halda sér svo fast að hverju viðfangsefni, að það yrði unnið til fullrar hlítar. Lesandanum virðist oft, að hann hafi tekizt á hendur ofurmannleg viðfangsefni, en aldrei uxu þau honum yf- ir höfuð, heldur óx hann með þeim. Hér skal ekki dómur lagður á hversu ævisöguhöfundinum hefir tekizt að sýna söguhetjuna, en ég býst við að fiestum fari líkt og mér, að þeim þyki bókin of stutt, þá fýsi að vita meira, en vitanlega verður aldr- ei nein saga sögð svo, að allra kröfum sé fullnægt. Höfundurinn gefur skýra mynd söguhetjunnar, og lesandinn hrífst með fullur aðdáunar og samúðar. Engum hygg ég þó hollara að lesa bók þessa en æskumönnum. Hún ætti að geta verið þeim leiðarstjarna og hvöt til dáða og drengskapar. Og þegar vér kynnumst ævi og starfi Nansens, þá vekur það eigi furðu, þótt þjóð sú, er hann hefir alið, sýni aðdá- anlegt þrek og þrautseigju í hörmungum þeim, er yfir hana hafa dunið. Slíkir kvistir spretta ekki af rótfúnum meiði. Það eru margir nú, sem láta sér fátt finn- ast um það flóð þýddra bóka, sem á mark- aðinn kemur og það ekki að raunalausu. En bækur, sem ævisaga Nansens, eru feng- ur íslenzkum lesendum, og óskandi væri að fá fleiri ævisögur ágætismanna frændþjóða vorra á Norðurlöndum. Guðbjörg Jónsdóttir trá Broddanesi: Gamlar glæður. Reykjavík 1943. Útg. ísafoldarprentsmiðja. Þetta er mikil bók að vöxtum og flytur hún endurminningar höfundarins, frá því hún var að alast upp norður á Ströndum á seinni hluta sl. aldar. Bókin flytur nákvæm-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.