Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 22
8 SÆNSKIR HÖFÐINGJAR N. Kv. steininn, þýddu rúnírnar, og hún heyrði þá lesa með hárri röddu: „Hjálmdís reisti steininn yfir Þorgrím föður sinn, góðan bónda. Þú. sem framhjá gengur, munt lesa nafn hans og muna það" 3. Hjálmdís ríður til Uppsala. Þegar Hjálmdís var fjórtán ára að aldri, setti hún hjálm föður síns á höfuð sér, tók skjöld hans og spjót og reið af stað til Upp- sala. Þegar þangað kom, sá hún á einum hinna miklu hauga ungling, sem Jrar sat. Hann leit út fyrir að vera á svipuðum aldri og hún sjálf. — Svipur hans var harðúðlegur og óvæginn. Og í leik hafði hann einhvern tíma fengið högg af drykkjarhorni, svo að hann hafði ör þvert yfir nefið — Heil og sæl, skjaldmey! kallaði hann ti! hennar. — Munt þú heldur ekki mæla vin- samlegt orð við konungsson, er situr á haugi föður síns og krefst réttar síns til arfs og óð- als? Ólafur faðir minn og Eiríkur bróðir hans voru samkonungar yfir öllu Svía-ríki. — Hver er þá konungur nú, úr því að þú ert það ekki? spurði hún. — Nafn mitt er Björn, en ég er kallaður Styrbjörn, mælti hann biturlega. — Þeir vilja ekki taka mig til konungs né hylla mig og lyfta mér á skjöldum. Nýlega ráku þeir mig af þinginu með höggum og steinkasti, vegna þess að þeir vilja ekki hafa svo ung- an konung yfir sér. — Er Eiríkur vitur konungur og öruggur til sigurs? spurði hún og lagði spjótið þvert yfir herðakamb hestsins, meðan hún beið eftir svari. — Styrbjörn svaraði ekki, en andlit hans varð dökkrautt og augun leiftr- uðu af hatri, þegar hann spratt upp og kreppti hnefana. Þá mælti Hjálmdís: — Nú sé ég á svip þínum, að Eiríkur er vitur, réttsvnn og sigursæ!!, þess vegna er hann rétti maðurinn til þess að ráða yfir oss. En þú munt vera bæði drambsamur og illur. Betra ráð mundi því vera fyrir þig, að ganga á fund Eiríks konungs og biðja hann um nokkur af stærstu skipum hans, og að þú síðan héldir í víking. Að svo mæltu sporaði hún hestinn og reið heim að konungsgarðinum. Styrbjörn hlýddi ráðum hennar. — Um kveldið, þegar allir sátu inni á bekkjunum í konungshöllinni, gekk hann fyrir kon- ung. — Eiríkur konungur .sigursæli sat í há- sæti. Hann var tiginmannlegur ásýndum og gæddur mikilli karlmannlegri fegurð, þó að liann væri sólbrenndur og veðurbitinn. — Hann tók frænda sínum vtl og með snjöllu máli lot'aði hann Styibirni ekki minna en sextíu skipum vel búnum bæði að vopnum og mönnum. — Stvrbjörn þakkaði honum samt ekki með einu orði, heldur stóð þögull með drembilegum kuldasvip álengdar. Lengst burtu frá hásætinu við gaflvegg- inn í öðrum enda hallarinnar stóðu tólf 'úr- vals skjaldmeyjar. Hjálmdís var nýkomin í flokk jieirra sem sú tólfia og yngsta. — Margur gamall berserkur varð rnildur á svíp og brosti, þegar honum varð litið á æsku þeirra og fagran yfirlit. En skjald- meyjarnar litu alls ekki við hetjunum. — Þær ræddu sín á milli um vopn sín, hlífar og önnur hertygi, og um hestana, sem biðu þeirra krafsandi af óþolinmæði í hesthús- unum fyrir utan. Styrbjörn gekk til dyra án þess að kveðja. En um leið og hann fór framhjá skjald- meyjunum, sneri hann sér að Hjálmdísi og mælti: — Þungt mun það falla landflótta kon- ungssyni að sitja einn á sætrjám um úfið haf. — Komdu því og fylgdu mér, þú fagra spjótmær! Þá hlógu allar skjaldmeyjarnar, svo að það hljómaði eins og foss að vorlagi, jregar klakaböndin bresta. — Skjaldmærin fvlgir engum. svaraði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.