Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 21

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 21
,N. Kv. SÆNSKIR HÖFÐINGJAR 7 Hjálmdís sneri sér þá að þeirri næstu og lagði sömu spurningu fyrir hana. En hún fékk sama svar: — Ég heiti sjálfsagt Gleymd líka. Nú reið Hel sjálf, drottning undirheima, eftir árbakkanum hinum megin á þrífætta hestinum sínum. — Hún var hvítgrá eins og krít og hrópaði yfir ána: — Ég hefi skarpari sjón en allir aðrir. Og ég sé vel, að þú átt ekki hér að vera, bam litla! Að hverjum leitar þú? Sé það faðir þinn, þá situr hann nú í sölum Óðins, ef hann hefir fallið fyrir sverðum eða varpað sér fyrir björg. — En konur eiga ekki auð- veldan aðgang til Valhallar. . . . En hvort sem hann heldur er í sölum Óðins eða hér hjá mér, þá vona ég samt eitt, og það er, að einnig hann bráðlega megi heita: Gleymd- xir! Og svo skellti dóttir Loka upp úr og hló svo að dundi í hellum og gjótum allra und- irheima. Hjálmdís hafði hulið höfuð sitt í kjöltu •góðu konunnar. En nú stökk hún upp grip- in svo mikilli skelfingu, að hún gáði einskis, heldur flýði sem fætur toguðu upp þrepin. — Hún hljóp og skreið og stökk og fann hinn hrollkalda gust, er lagði frá hin- um dánu svipum, þegar hún fór framhjá. ískaldur svali lagði frá klæðum þeirra, en enginn stöðvaði hana, né lagði til hennar. — Hún var einungis barn. — Loksins fann hún, að hún var komin alla leið út á milli trjánna, fann andvarann, sem þar lék um hana, og sá himininn, sem breiddi sig fyrir ofan hana. Nóttin var ekki myrkari en það, að hún gat ratað. En heim komst hún ekki- fyrr en albjart var orðið. — Þrællinn, fóstri henn- ar, sat á þröskuldinum með mjólkurfat og mataði snákinn, sem átti bústað undir horn- steini hússins, og oft var vanur að skríða fram að arninum. — Honum sagði Hjálm- dís sögu sína. Þegar þrællinn hafði hlýrt á hana til enda, raulaði Iiann fyrir munni sér, eins og hann væri að gera gælur við snákinn: — Þú, vitri ormur, Iivað heldur þú? Barn- ið hefir sofnað úti í skóginum, og þar hefir liana dreymt um allan þann fróðleik, sem Islendingurinn sat og talaði um fyrir lienni í gær. ... Þó — já, hver veit? Kannske það hafi líka verið eitthvað meira en einbert draumarugl? Um það voga ég, vesall og fá- vís þræll, ekki að segja neitt. — En vissulega er það þungbært að hugsa til þess, að svo góður húsbóndi og gildur þegn, sem Þor- grímur bóndi var, skuli nú bráðlega vera öllum gleymdur. Þorvaldur Hjaltason sat inni í stofunni og heyrði orð þrælsins. Hann stóð þegar á fætur og skundaði út berhöfðaður. Hann mælti: — Þú mælir af þínu viti, góði þræll. En það skalt þú vita, að rúnirnar eru nú komn- ar til vor frá Óðni, og eru þær ágætastar allra hluta, er hann hefir veitt oss. Einskis virði er bæði gull og stál borið saman við rúnirnar. — Áður stóðu bautasteinarnir þögulir og naktir. En upp frá þessu munu rúnir prýða steinana eins og laufið grein- arnar. Og nú geta meira að segja þeir, sem dauðir eru, mælt við oss. Sigurrúnir, lög- rúnir, ættrúnir, skáldrúnir — heill sé yður! Þið varðveitið minningarnar! Þið hafið drepið alla gleymsku! Að svo mæltu bað hann þrælinn að koma með sér. Og niðri á sjávarbakkanum undir hinni fornu hengibjörk, sem þar stóð, reistu þeir bautastein til minningar um Þorgrím bónda. Eftir að Þorvaldur liafði rist þær rúnir, sem honum líkaði, kvaddi hann Hjálmdísi og kyssti hana, og hélt svo leiðar sinnar. Eftir það sat hún oft löngum á kveldin í grasinu við bautasteininn. — Og þegar hún smám saman fór að skilja mátt rúnanna varð henni oft að gráta af gleði. En það var, þegar vegfarendur staðnæmdust við bauta-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.