Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 26

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 26
12 SÆNSKIR HÖFÐINGJAR N. Kv. hér. — Einkabarn mitt var aðeins stúlka, og það tók ég svo nærri mér, að ég leitaði dauðans og kastaði mér fyrir björg. Hjálmdís skyggði fyrir augun og sá nú að þetta var enginn annar en Þorgrímur bóndi, faðir hennar. Hún hljóp til hans, vafði hann örmum og grét af fögnuði. — Faðir minn, mælti hún, — að endingu fann ég j:>ig. Hér er ég nú komin til þess að færa þér vopn þín. Mikið gagn hafa þau gert mér og vel vörðu þau mig, allt þangað til ég sjálf lá undir fyrir sverðshöggunum. Þá grét gamli maðurinn og vafði hana upp að sér. . . . En nú varð allt í einu hljótt í Valhöll og allir hlustuðu: Fjarlægur hörpusláttur frá Fyrisvöllum hljómaði alla leið þangað upp. Valkyrjurnar lutu hver að annari og hvísluðu: — Sjáið, systur! Nú fagnar Þorgrímur, hinn góði bóndi, vegna þess að hann átti dóttur. C. Krause: Dætur frumskógarins. Saga frá Mexíkó. Guðmundur Frímann þýddi. (Framhald). XXVII. í ÞORPI PEKOANNA. Eins og lesandinn man, lofaði Ruben úrasali þeim félögum, Járnhönd og Nevado, er hann yfirgaf þá, að hann skyldi frelsa indíánastúlkuna Skógarblóm, unnustu Nevados. En hún var fangi í þorpi peko- anna. Að kveldi sama dags kom hann hljóð- lega út úr frumskóginum þeim megin við Colorado, sem þorp pekoanna var. Það leit út fyrir að hann kæmi langt að, því að klæði hans voru rykug og skórnir leirugir. Engin þreyta var þó sjáanleg á honum, öðru nær. Svipurinn var einbeitt- 'ur, eins og þess manns, sem hvggst að vinna mikil afrek. Hann stefndi til þorps peko- anna. Hundurinn Kosta fylgdi honum fast á hæla. Eftir því sem hann nálgaðist meir ákvörðunarstaðinn, því varlegar fór hann.. Inni í þéttum skógarrunna námu þeir staðar og kvekarinn tók ti! nestis síns. Þeg- ar hann hafði hvílt sig í nokkrar klukku- stundir skreið hann út úr fylgsni sínu og hélt ferðinni áfram með sömu varúð og áður. Nóttin var dottin á. en tunglsljósið lék óhugðnanlega um skóginn. Allt í einu stanzaði Kosta og þrýsti sér upp að hús- bónda sínum. Ruben nam staðar og skim- aði í kringum sig, en sá ekkert grunsam- legt. „Hvar var það, Kosta?“ hvíslaði hann lágt. Hundurinn skildi þegar hvað hann átti við og læddist hljóðlega á undan húsbónda sínum út í skóginn. Að vörmu spori nam hann staðar. Skógurinn var þar gisnari og tunglsljósið naut sín þar betur. Ruben faldi sig ásamt hundinum bak

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.