Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 28

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 28
14 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. arinnar hefir hann líka lifað síðan, og aldr- ei mun hann unna sér hvíldar, fyrr en kyn- stofn þinn er gjöreyddur. Á þessari stundu er það hönd hans, sem heldur á sverði refs- ingarinnar yfir höfði þínu, rauði djöfull, og getur þú, er þú veizt það, búist við því að fá a.ð lifa lengur?“ Kvekarinn þreifaði um brjóst öldungsins og samstundis hné hann örendur út af. Þótt það, sem skeð hafði, gæti ekki hafa séðst úr þorpinu, þá þótti Ruben öruggara að bera líkið þangað, sem kjarrið var þétt- ara. Kosta hélt vörð á meðan. Stundu síðar kom indíánahöfðingi í full- um skrúða út úr runnanum. • Hundurinn gerði sig þegar líklegan til að ráðast á hann. ,,Vertu rólegur, Kosta!“ Hundurinn áttaði sig strax og flaðraði upp um húsbónda sinn, sem hafði klætt sig í búning gamla indíánahöfðingjans. Kvekarinn tók nú líkið og lagði það.þar sem auðvelt var að koma auga á það. Ruben kallaði nú á hundinn og læddust þeir hljóðlega lengra inn í dalinn, þó gætti hann þess að fara ekki lengra en það, að hann gæti fylgst vel með öllu, sem gerðist í indíánaþorpinu og í nánd við það. Völdu þeir sér gott fylgsni og héldu þar kyrru fyrir, það sem eftir var dagsins. í þorpi pekoanna ríkti djúp sorg. Þó urðu indíánarnir fyrst sturlaðir þegar frétt barst um það, að gamli Makamsch væri horfinn. Honum höfðu verið falin æðstu völd í þorpinu í fjarveru sonar síns. Nokkr- ar konur höfðu séð hann um morguninn á gangi fyrir utan þorpið. Enginn hafði undr- ast um hann fyrst í stað, því það var vitað að hann fór stundum einförum, einkum ef hann átti eldvatn til að hressa sig á. Á friðartímum hafði hann í viðskiptunr við hvíta menn komizt í kvnni við sterka drykki og orðið ánauðugur þræll þeirra. Þegar gamli maðurinn var ekki kominn heim síðari hluta dagsins, þótti það ekki einleikið og var því hafin leit að honum. Fannst hann fljótlega, og skelfingunni verður ekki lýst með orðum, er þeir sáu að hann hafði verið stunginn beint í hjartað og að þrír krossar söfðu verið ristir með hníf á enni hans. Öllum var Ijóst, hver þar hafði verið að verki. Lík Makamsch var borið inn í þorpið og lagt við hlið hinna líkanna. Meðan þessu fór fram héldu Ruben og Kosta kyrru l'yrir í fylgsni sínu og biðu næt- urinnar. Hugur kvekarans reikaði víða. Honum var hugsað til haciendu del Rodriquez. Hver skyldu örlög hennar verða? Skildi Járnhönd og Nevado hafa tekist að komast þangað á undan apacha-indíánunum. Þá væri lraciendunni borgið. Ef til vill hafa indíánarnir náð henni á vald sitt áður en Iijálpin kom. Og kvekarinn varð gripinn skelfingu við umhugsunina um þau örlög,. sem þá hefðu beðið íbúanna. Ruben tók fram mvndarnistið, sem hann hafði fundið á 1 íki Don Rodriquez og virti myndina af Donnu Maríu gaumgæfilega fyrir sér. Donna Dolores líktist henni mjög mikið. Því næst sneri hann nistinu við. Hafði honunr aldrei áður tekist að opna það þeim megin. En nú opnaðist það af einhverri til- viljun. Ruben náfölnaði, er hann sá hvað í nist- inu var. Hann einblíndi lengi höggdofa á litla mynd sem í því var. Hún var af honum sjálfum, konu hans og bróður. Það var eng- unr vafa undirorpið, að Don Rodriquez var bróðir hans. Hann minntizt þess óljóst, að Iiafa séð þennan minjagrip áður. Bókstaf- irnir M. R. voru grafnir innan á annað lok- ið. Þeir gátu þýtt: María Rodriquez. Kvekarinn sat lengi kyrr og lét hugann reika til æskuáranna. Hann og bróðir hans, Gonsalvo, höfðu báðir elskað sömu stúlk- una. Faðir hennar var læknir, franskur að uppruna, en móðir hennar var áttungur.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.