Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 30

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 30
16 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. „Hvað á ég að gera, ef Skógarblóm vill ekki koma með mér?“ spurði indíáninn. „Segðu henni að gamall vinur hennar, Nevado að nafni, sé hér og vilji tala við hana. Að sjálfsögðu máttu ekki geta þess, að hann er dauður fyrir löngu síðan. Ekki heldur máttu geta þess við nokkurn, að þú hafir séð mig. í fyrramálið um sólarupprás mun ég tala til ykkar allra, áður en ég held út á hinar eilífu veiðilendur. Farðu nú og framkvæmdu skipanir höfðingja þíns, þá mun hinn mikli andi hafa velþóknun á þér. Mundu nafnið Nevado." Indíáninn fór. Ruben horfði á eftir honum og sá að hann staðnæmdist við einn kofann í indí- ánaþorpinu. Indíáninn, sem var hjátrúarfullur eins og og flestir indíánar, efaðist ekki um, að það hefði verið Makamsch, er hann hitti við vatnið, og taldi hann því ráðlegast að fram- kvæma skipanir hans í einu og öllu. Þegar hann hitti Skógarblóm, bar hann henni orðsendingu þá er indíánahöfðing- inn hafði boðið lronum að flytja henni í nafni Nevados. En það ætlaði að ganga illa að sannfæra hana. Að lokum lét hún þó til- leiðast. Þegar þau nálguðust vatnið, og sáu indí- ánahöfðingjann standa þar, þóttist Skógar- blóm sjá, að hún hefði verið blekkt. Gerði hún tilraun til þess að slíta sig lausa af fylgdarmanni sínum, en tókst það ekki. Ruben gekk þá á móti henni og mælti á mállýzku komascha-indíána: „Vertu ekki hrædd, Skógarblóm! Ég er að vísu ekki Nevado, en ég er vinur hans og Járnhandar og hefi lofað þeim að frelsa þig úr klóm md’ánanna og koma þér á fund unnusta þíns.“ Skógarblóm sá strax, hvernig í öllu lá. „Til þess að okkur sé nokkur kostur að sleppa,“ hélt Ruben áfram, „verð ég að taka líf þessa unga manns, sem sótti þig. Mér er það engan hátt ógeðfellt, því að ég hefi heitið indíánum eilífri hefnd, fyrir alla þeirra glæpi. Þeir hafa drepið móður mina og konu, son minn og bróður, og ef til vill eru þeir á þessari stundu að murka lífið úr börnum hans á haciendu del Rodriquez." Ruben gekk nokkur skref nær hinum unga indíána og mælti: „Er það ekki Blóðsugan, sem ber þarna yfir sefið á árbakkanum?" Indíáninn leit við, en í sömu andrá greip Ruben heljartaki um kverkar hans og keyrði lrann til jarðar, Lét hann kné fylgja kviði og lagði hann í gegn með litlum bjúghníf, sem hann var með. Indíánanum hafði ekki tekizt að gefa nokkurt hljóð frá sér. Ruben tók nú Skógarblóm við hönd sér og leiddi hana eins hratt og hún gat farið áleiðis til frumskógarins. Fóru þó gætilega, en höfðu þó hraðan á. Þegar þau voru komin langt inn í frum- skóginn, námu þau staðar, og Ruben tók upp nesti sitt. Gaf hann Skógarblómi nreð sér og sagði henni síðan að hvíla sig og sofna, ef hún gæti. Sjálfur lagðist hann einnig til svefns. Er þau höfðu sofið um hríð, kom Kosta allt í einu og vakti húsbónda sinn. Þóttist Ruben vita, að hundurinn hefði lreyrt eitthvert hljóð utan úr skóginum. Stóð hann með varúð á fætur og svipaðist um. Síðan vakti lrann Skógarblóm. Lædd- ust þau nú hljóðlega fram úr skógarþykkn- inu, þar sem þau höfðu leitað skjóls. I litlu rjóðri framundan þeim komu þau nú auga á indíána, er stóð þar hreyfiiigar- laus og studdist fram á byssu sína. „Þarna er Nevado", mælti Skógarblóm fagnandi, en Ruben þaggaði niður í henni meðan hann var að ganga úr skugga um að hún hefði rétt fyrir sér. Sá lrann fljótlega að svo var og kallaði til Nevados. Nevado kom hikandi nær. Honum hefir sennilega staðið stuggur af klæðnaði Ru- bens. En þegar hann þekkti velgjörðamann

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.