Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 55

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 55
N. Kv. VITASTÍGURINN 4! reyna að veita einhverja hjálp. Barnið mitt verður nú Guð og þér að annast." Hann smeygði sér í flýti úr inniskónum og gekk á sokkaleistunum fram í ganginn. Þau heyrðu, að hann leitaði þar að stígvélum sínum og olíustakk. Til að ná stakknum hafði hann í flýtinum rifið niður öll hin fötin af snögunum, og sparihatti Fíu með páfuglsfjöðrinni hafði hann jafnvel fleygt út í horn. Fía og læknirinn liöfðu farið á eftir honurn fram í göngin. ,,En á hvern hátt getið þér hjálpað núna?“ spurði læknirinn. „Við höfum prammann niðri í naustinu." „Ekki getur þú sett hann fram einsam- all,“ sagði Fía. „O, mér veitist vonandi kraftar til þess. Ég get ekki látið fólk farast rétt úti fyrir bæjardyrunum okkar án þess að reyna að minnsta kosti....“ Hann var þegar kom- inn út í dyrnar. „Ég fer með þér, Adam,“ sagði Fía allt í ein. „Við höfum áður staðið saman, þegar á reyndi, og við getur heldur ekki skilið núna!“ Hún greip í hurðarsnerilinn. En þá heyrði hún Benediktu kveinka sér, innan úr herberginu: „Mamma, mamma, mér er svo illt.“ Fía vatt hendur sínar. ,,Æ, Guð minn góður, hvað á ég að gera? Barnið mitt--- en ég get ekki látið þig fara einan, Adam ------æ, ef ég skyldi nú missa ykkur bæði Þá heyrðist sagt í grönnum róm: „Ég fer með pabba, þá getur þú verið óhrædd heima, mamma!" Það var Öskar, sem nú var kominn í bux- ur og blússu. „En elsku drengurinn minn, ert þú líka á fóturn?" sagði Fía. Hún tók drenginn í fang sér og þrýsti honum að sér. „Komdu bara með mér ofan á Tangann, Óskar; þú getur að minnsta kosti haldið í fangalínuna, og þú hefir gott af að venja þig við“ sagði Adam. Fía færði drenginn í gamla olíukápu og í sterka skó. Hún stóð í dyrunum, þrýsti höndum að hjartastað og horfði lengi á eft- ir þeim. Hana langaði helzt til að hlaupa á eftir þeim út í storminn.-----Adam var hennar bezta eign í heimi, eini maðurinn, sem hún unni — — — en nú kveinkaði Benedikta sér á ný. Fía gekk inn til læknis- ins. Adam leiddi Öskar við hönd sér ofan eft- ir. Þeir urðu að þreifa fyrir sér í hverju spori. Það kom að góðu haldi, að vitinn varpaði ljósbliki sínu aðra hvora mínútu; en það varaði aðeins stutta stund og risti aðeins skarpa ljósrák meðfram ströndinni. Utan við rákina var svarta-myrkur. „Það er einkennilegt, hvernig allt breyt- ist í myrkri," sagði Adam, þegar þeir stóðu lítið eitt við til að blása mæðinni. „Já, pabbi, líttu á steinana þarna niðri við sjóinn, þegar vitinn blossar, sko núna, núna — er það ekki alveg eins og það væru gamlir menn, sem sætu þarna álútir," hvísl- aði Óskar. „Geturðu séð, hvort það brýtur úti á Hrosshólmaboðunum? Þú sérð bæði og heyrir betur en ég,“ sagði Adam. „Nei, það er svo dimmt, að ég sé ekki neitt, pabbi.“ „Heyrirðu þá ekkert? Það er alveg eins og einhver sé að kalla." Hann tók sjóhatt- inn af höfði sér og lagði eyra við vindinum. Hann þreif í handlegginn á Óskari: „Heyr —■ hlustaðu nú vel! Mér heyrist einhver kalla mamma, mamma!“ Þeir flýttu sér nú þann spölinn, sem eftir var ofan að naustinu. Þeir urðu að skríða á fjórum fótum. Óskar rak hnéð í stein og kenndi mjög til, en hann beit saman tönn- um og lét ekkert til sín heyra. Pabbi skyldi fá að sjá, að hann væri engin mannleysa. „Þú ert orðinn svo blautur," sagði Adam, þegar þeir hvíldu sig ofurlítið undir stór- um steini. „Puh, það gerir ekkert; við Hólmverjar megum ekki æðrast, þótt á gefi 6

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.