Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Qupperneq 59

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Qupperneq 59
N. Kv. VITASTÍGURINN 45 „Við skulum ganga ofan að naustinu, Stolz.“ Þeir gengu ofan að sjónum, og Roosevelt og „Sancho" fóru með þeim. Þessir tveir voru þegar orðnir vinir. Roosevelt fleygði smásteinum í sjóinn og vildi láta ,,Sancho“ synda, en það vildi hann ekki. Hann hafði fengið nóg af sundinu í nótt. Björgunarbelti var á reki rétt uppi við flæðarmálið. Adam tók krókstjaka og dró það á land. Það var merkt „E/S. Sancho frá Litlasandi". Hann hengdi það inn í naust- ið. Rétt á eftir tók hundurinn að ýlfra dá- lítið utar í fjörunni-rak upp löng, vein- andi hljóð. Roosevelt kom hlaupandi: „Pabbi, pabbi, það liggur maður úti hjá Hellum, hann hefir svart skegg.“ Þeir hlupu þangað, sem hundurinn stóð í þara- brúkinu yzt í flæðarmáli. Þar lá lík af sjó- tnanni. Það lyftist öðru hvoru af ólgunni við fjöruborðið. Augun voru lokuð. Hann svaf fast. Sjóhatturinn guli var hnýttur undir hökuna og sást aðeins í fölt, svart- skeggjað andlitið. Hundurinn beit í frakkakragann og reyndi að draga manninn á land, en vann ækkert á. Hann lagðist þá niður í þarabrúk- Jnu hjá líkinu og sleikti andlit þess. Þá fór Roosevelt að gráta. Honum hafði eigi skil- Jst, hvað um var að vera, fvrr en nú. Adam °ð út í og bar líkið í land. Kröger hjálpaði honum til að leggja það inn í naustið. Þetta var maður á þrítugsaldri, sennilega skip- stjórinn. Gildur gullhringur blikaði á hægri hendi hans. ..Sancho“ lagðist við höfuð hins látna og varð eigi hnikað þaðan. Þeir vildu ekki veka hann burt og létu hann því fá að hggja í friði. Hinn látni hafði verið hús- bóndi hans í gær, og hundurinn gat því ækki annað skilið, en að það hlyti hann einnig að vera í dag. Kröger stóð og horfði á þessa tvo vini og sagði síðan við Adam: „Sancho Panza og riddarinn aumi og hryggilegi!"1) Hann tók í hönd hins látna. „Mér virðist þetta ekki vera neitt aum- legt né hryggilegt,“ sagði Adam. „Dauðinn er því nær ætíð hryggilegur." „Nei,“ sagði Adam, „lítið þér á hann, sem hérna liggur, hann brosir. Síðasta hugsun hans hefir sennilega verið konan hans og bömin heima, og þeim sendi hann sitt síð- asta bros.“ „Þér hafið rétt að mæla, þér hafið ætíð rétt, undarlegi maður. Það er lífið, sem er hryggilegt, dauðinn oftast nær ekki.“ „Það eru vor eigin sjálfskaparvíti," sagði Adam rólega. „Ef til vill. Þér hafið sennilega rétt í því líka. Nú minnist ég þess, að þegar faðir minn andaðist, þá brosti hann. Ég var þá sextán ára gamall. Ég var svo hrærður af þessu, að tilfinningar mínar brutust fram í kvæði, því eina, sem ég hefi ort á ævinni: Faðir! Hvað skyldi bros þitt boða, er brátt þú hneigst í dauðans fang? Kannske þú sjáir sólarroða sígylla Paradísar-vang.“ Þeir stóðu þögulir um hríð, svo sagði Adam alvarlega: „Ég hefi aldrei fyrr heyrt yður tala á þennan hátt, læknir." „Ég er ef til vill í hreinna lofti hérna efra,“ svaraði hann hljóðlátlega. Þegar Kröger læknir fór heim til sín um morguninn, virtist honum hann vera orð- inn annar maður. Það var eitthvað innan- brjósts, sem hafði valdið honum kvöl og sársauka, en hafði nú losnað. Lífið var þó ef til vill ekki eins hryggilegt, og hann hafði talið, þegar öllu var á botninn hvolft? „Sjálfskaparvíti, sjálfskaparvíti." Þessi vitavörður var sannarlega merkilegur mað- ur. (Framhald). J)Sbr. skáldsöguna: Don Quijote eftir spænska skáldið Cervantes Saavedra (1547—1616). ÞýO.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.