Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Blaðsíða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Blaðsíða 8
44 ENDURMINNINGAR KRISTJÁNS S. SIGURÐSSONAR N. Kv. því svo, að hvort sem ég vann á nótt eða degi, hafði ég oft lítinn svefn vegna þess, hve oft ég var vakinn til að lagfæra ein- hverja smávegis bilun. Magnús Þórarinsson var ágætis maður, og líkaði mér mjög vel við hann. Hann var hugvitsmaður og smiður góður á tré og járn. Þessi ár, sem ég var hjá honum, var hann sífellt við smíðar. Oftast var hann þá að búa til mót (,,módel“) af einhverri vél, sem hann var þá að finna upp. Það var honum mikill bagi, að hann kunni ekki að teikna. Varð hann því að smíða hluti þá, eða mót af þeim, sem hann hafði í huga og var að þrauthugsa út, og eyddi hann í þess háttar bæði miklum tíma og efni. Þá var hann að fullgera dúnhreinsunarvél þá, sem hann fann upp, og tókst honum að selja nokkrar þeirra. En þá hafði hann líka smíð- að margar smávélar sem ,,mót“, og þær geymdi hann í hlaða uppi á hlöðubitanum. Hefði hann kunnað að teikna, mundi hann hafa getað sparað sér mestalla smíði af þessu tagi. Einni vél man ég eftir, þeirra, sem hann hafði sjálfur fundið upp og smíðað. Var hún til að beygja kambavír og var öll úr járni. Var þetta mesta völundarsmíð, og tæplega stærri en helmingur venjulegrar saumavélar. Þurfti ekki annað en að stinga vírnum inn í gat, sem var hæfilega vítt fyrir hann, og snúa síðan sveif vélarinnar. Dró hún svo vírinn í sig og beygði liann rétti- lega, klippti hann síðan sundur og fleygði honum frá sér. Og svo fljótvirk var hún, að beygja mátti þúsund lykkjur á klukku- stund. Þá átti hann einnig skrá eina, sem hann hafði smíðað. Hún var þannig gerð, að enginn gat opnað hana, nema lært hefði það sérstaklega. Þótt lyklinum væri snúið á ýmsa vegu, stoðaði það ekkert, og mátti snúa honum í það óendanlega, án þess að læsingarjárnið hreyfðist, væri ekki viðhöfð sérstök og rétt aðferð. Til þess að skráin opnaðist þurfti að snúa fimm heila snún- inga, en þar á milli þurfti að snúa lyklinum nokkrum sinnum til baka, en þá ekki heila snúninga. Hver snúningur gerði ákveðinn smell, og eins snúningsbrotin til baka, og þessa smelli þurfti maður að þekkja. Páll bróðir Magnúsar hafði farið til Eng- lands tvisvar eða þrisvar sinnum. Og í síð- ustu ferð sinni hafði hann farið með skrá þessa til að sýna hana og reyna að selja hana. En hann kom með hana heim aftur. Hafði banki einn viljað kaupa skrána, en til var- tiðar lét hann sérfræðinga skoða hana og segja álit sitt um hana. Höfðu þeir lokið á hana mesta lofsorði og dáðst að henni sem listasmíði. En þeir voru hræddir um, að æfðir innbrotsþjófar gætu stungið hana upp. Þess vegna varð ekki af kaupunum. En bankinn bauðst til að kaupa hana og gefa fyrir hana 2000 krónur, væri henni breytt þannig, að ógerningur væri að stinga hana upp. Nú var Páll í Englandi í síðasta sinn. Var hann þá að kvænast Lissý. Þegar hann fór, var Magnús ekki búinn að breyta skránni. En hann ætlaði að gera það og senda svo Páli hana út. Það var fáum dög- um eftir, að ég kom til Magnúsar, að hann byrjaði að vinna við skrána. Mér er tími sá mjög minnisstæður. Sennilega er það mest sökum þess, að þá þekkti ég Magnús lítið, og hélt ég stundum um þær mundir, að hann væri að verða geggjaður. Hann var í smiðju sinni daginn á enda og dag eftir dag í þrjár vikur, gætti hvorki matmálstíma né háttatíma. Virtist hann enga hugmynd hafa um það, sem gerðist umhverfis hann. Hann vann og hugsaði og kvað í sífellu sömu vísuna, án þess að vita, hvað hann var að kveða. En vísan er svona: Hún gat séð af hundsfylli. Hún gat lánað rúmbæli. Hún var svona hress við veg. Hún var kona rausnarleg.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.