Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Blaðsíða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Blaðsíða 20
56 SVEINN SKYTTA N. Kv. Svíarnir drepa á dyr,“ mælti liann ánægju- lega, „enn er allt með kyrrð og spekt fyrir utan, og þau hin komast óefað undan heil á húfi, því að ekki getur höfuðsmaðurinn svikið þau, meðan Ib er nærstaddur. Og enginn hefur séð þau fara héðan.“ „Nema ég,“ var sagt úr skotinu hjá lok- rekkjunni, og er Sveinn leit forviða við, sá hann ókunna manninn, er setið hafði þög- ull og rólegur á hálmstólnum og ekki látið á sér bæra, meðan því fór fram, sem á und- an er gengið. Sveini varð það fyrst fyrir að grípa ósjálf- rátt til skammbyssunnar í belti sínu, en er honum varð litið á fölt og góðlátlegt andlit hins ókunna manns, sleppti hann skamm- byssunni og gekk til mannsins. ,,Hver djöfullinn sjálfur eruð þér?“ spurði hann forviða, „og hvernig eruð þér hingað kominn?" „Ég hef setið hér í allt kvöld,“ svaraði ókunni maðurinn, „og kom hingað í erindi til þín, Sveinn Gjönge." „Já, það verður nú að bíða um hríð,“ mælti Sveinn, „því að rétt núna í svipinn er um að gera að komast á brott. Eruð þér danskur maður?“ „Það heyrirðu sennilega á mæli mínu.“ „Því miður!“ svaraði Sveinn, „ég heyri svo marga mæla á danska tungu, án þess að þar fylgi hugur máli. Annars átti ég við, að séuð þér ekki á bandi Svía, væri það léleg meðmæli fyrir yður að láta hitta yður í þessu húsi.“ „Við verðum þá samferða." „Þá það, þótt ég kunni því ætíð.bezt að vita, hvern ég hef fyrir mér, enda er hand- iðn mín af því tagi, að ég þarf á varkárni að halda, skal ég segja yður, ókunni maður! Það hafa kringumstæðurnar kennt mér.“ Sveinn virti manninn fyrir sér sem allra snöggvast og var í vafa um, hvað gera skyldi. Síðan gekk hann inn í lokrekkjuna og sótti þangað tvær rekkjuvoðir og nokkra ullar- sokka. „Sjáið þér nú til,“ mælti hann, „vefjið þessu utan um yður og færið yður í sokka utan yfir skóan, og þá munum við geta far- ið fram hjá Svíunum á tíu skrefa færi, án þess að okkar verði vart, og síðan skal ég fara með yður þangað, sem þér getið borið fram erindi yðar óhultur." Maðurinn hlýddi þessu. Síðan slökkti Sveinn á ljósspæninum og læddist út um dyrnar og hlustaði þar um hríð, en kallaði síðan á ókunna manninn, og héldu þeir svo af stað burt frá húsinu. Sveinn fór eftir götustíg, sem von bráðar lá ofan í einn hinna djúpu skurða, sem um- girtu hin konunglegu veiðisvæði og að- greindi þau frá engjum herrasetranna. Báð- um megin skurðanna voru gróðursett tré og runnar, sem breiddu greinar sínar út yfir þá frá báðum hliðum, og svo var að sjá, sem vegir þessir væru alloft notaðir á sama hátt og í nótt, því að snjórinn var mjög troðinn og ruddur vegurinn. „Þér verðið annað hvort að ganga á und- an mér, eða helzt þó við hlið mér,“ hvíslaði Sveinn, „svo að ég lrafi sem mesta ánægju af samfylgd yðar.“ Ókunni maðurinn hlýddi jressu þegar.' „Er langt þangað, sem þú hefur hugsað þér að leita að fylgsni?" „Nei, aðeins stuttur spölur enn, og alla leið eftir skurðinum, unz við komum þangað." Er þeir komu til skógarins, stökk Sveinn upp á garðinn og mælti: „Komið hingað og takið í liönd mína, svo að ég geti hjálpað yður upp. Nú erum við öruggir eftir að komið er inn í skóginn; hér í kjarrinu geta óvinirnir ekki fundið neina leið í myrkri, og að minnsta kosti er ég hér allra manna kunnugastur. Setjist þér nú hérna á steininn og varpið mæðinni, áð- ur en við höldum áfram.“ „Ég þykist sjá í nótt, að þú eigir hvorki næðissama daga né neitt sældarlíf við að búa,“ mælti maðurinn, „og méi er farið að

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.