Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Blaðsíða 15
N. Kv. ENDURMINNINGAR KRISTJÁNS S. SIGURÐSSONAR 51 færari en áður um að skaprauna mér. Ot- uðu þeir að mér brennivíni í sífellu, en ég vildi aldrei drekka. Á þeim árum mun ég tæplega hafa þekkt bragðið af brenni- víni. En ég hafði séð, hvaða áhrif það hafði á aðra, og þótti mér það ekki til eftirbreytni. Heima hjá foreldrum mínum þekktist ekki áfengisnautn. Faðir minn drakk aldrei. Þó man ég það, að er hann kom úr kaupstað, sem ekki var nema tvisvar á ári, þá kom hann vanalega með eina flösku af brenni- víni. Þá var það siður að gefa „kaupstaðar- kaffi“. En það var kaffi með hagldabrauði, sem keypt var aðeins í því skyni að hafa með kaupstaðarkaffinu. Og út í það var fullorðna fólkinu gefið brennivín. Var mældur einn matspónn handa fullorðnum, en teskeið handa okkur krökkunum. En síðan var brennivínsflaskan geymd og ekki snert, nema þegar einhverjir vinir pabba komu; þá gaf hann þeim ætíð eitt staup út í kaffið. Ég hafði þó nokkrum sinnum séð fulla menn og var æfinlega hræddur við þá. En þetta var nú útúrdúr. Víkur nú sögunni til Björns og Ólafs í hólmanum. Þeir þurftu auðvitað að fá sér góðan sopa á eftir matnum, og þeir reyndu enn á ný að neyða víni ofan í mig. En er það heppnaðist ekki, tóku þeir að hvíslast á um eitthvað góða stund. Eftir það segja þeir mér, að þeir séu að liugsa um að synda þarna austur yfir ána. En eins og þegar er getið um, féll áin þarna í þröng- um og straumhörðum stokk, sem enginn hefði komizt lifandi úr, hversu góður sund- nraður, sem verið hefði. Mundi áin á svip- stundu hafa borið þá undir ísinn. Ég reyndi því að telja þeim trú um, að þetta væri eng- um manni fært, og færi þeir að reyna þetta, væri það sama sem að fremja beint sjálfs- tnorð. En þeir aðeins espuðust við þetta. Reyndi ég nú með öllum hugsanlegum ráð- Um að aftra þeim frá Jressu, en ekkert dugði. Tóku Jreir að klæða sig úr fötunum, og loks stóðu þeir alstrípaðir á skörinni. En þeir hikuðu sér við að steypa sér í ána. Þó voru þeir ófáanlegir til að hætta við þetta og fara í fötin aftur. Ég þjarkaði lengi við Jrá urn þetta, og seinast var ég orðinn svo reiður við þá, að ég sagði Jreim, að þeir mættu fara til fjandans fyrir mér, og að ég ætlaði ekki að standa hér lengur og horfa á þá drepa sig. Síðan hljóp ég til hestanna, batt einn hest aftan í hvern sleða og flýtti mér af stað suður ána með þá alla. Gerði ég þetta í Jreim tilgangi að sjá, hvort Jreir myndu ekki vitkast ofurlítið, Jregar Jreir sæju, að mér væri alvara að yfirgefa Jrá, og síðan hypja sig í fötin aftur. Þetta hafði líka sín tilætluðu áhrif. Þegar ég var kominn spölkorn suður fyrir hólm- ann, sneru Jreir aftur frá vökinni og fóru nú að kalla í mig. í fyrstu sinnti ég ekki kalli Jreirra. Hugsaði ég mér að lofa þeim að vorkennast og sjá, að mér væri alvara. En er ég sá, að þeir voru farnir að klæða sig í fötin, sneri ég aftur til að sækja Jrá, Jrví að ég vissi, að þeir voru ekki færir um að ganga þennan spöl. Þegar ég kom til Jreirra aftur, voru þeir hálf-gi'átandi og skjálfandi af kulda, sem og ekki var furða, Jrví að sjálfsagt hafa Jreir staðið allsberir í fulla hálfa klukkustund. Bjó ég síðan um Jrá, hvorn á sínum sleða, lét Jrá leggjast fyrir og breiddi ofan á Jrá kápur þeirra. Og nú sagði ég þeim, að ef Jreir hreyfðu sig nokkra vitund, mundi ég skilja þá eftir og halda áfram mína leið. Síðan hélt ég áfram með hesta og sleða tengda saman. Sofnuðu karl- arnir fljótt og sváfu lengst af suður ána. Áætlað hafði verið að komast heim um kvöldið; en nú hafði ferðin gengið svo seint, að komið var myrkur, er við vorum á móts við Grenjaðarstað. Ég treysti mér því ekki að leggja á Þegjandidal í myrkri með Ólaf sofandi á sleðanum, því að ekki veitti af, að maður með öllum kröftum og fullu viti væri með hvorum sleða. Þe°;ar í hliðarbrattann kom og undanhald, þurfti að hafa taugar í sleðanum og halda vel í 7*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.