Nýjar kvöldvökur - 01.10.1951, Blaðsíða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1951, Blaðsíða 12
N. Kv. Endurminningar Kristjáns S. Sigurðssonar. Ágrip af sjálfsæfisögu. ('Framhald). Síðan sendi hann eftir hestinum upp í liaga. En á meðan býður liann mér inn í stofu til Lovísu konu sinnar. Borðaði ég þar miðdegisverð. En að því loknu reið ég af stað á leirljósum gæðingi og í linakk Snorra. Varð ég nú að ríða Eyjafjarðará í hólmunum. Tók ég síðán hest minn á Veigastöðum og hélt heimleiðis með tvo til reiðar. Þegar heim kom, var tekið til óspilltra málanna til að búa út föt mín, sem að vísu var nú ekki mikið. En það sem var, þurfti ég að hafa hreint, er ég færi. En svo var líka eftir að sauma föt úr efninu, sem ég kom með frá Hólum. Var enginn fær um það á heimilinu, og enga saumakonu var hægt að fá til að gera þetta á svo stuttum tíma. Þá bjó Sigtryggur Helgason, frændi minn, á Hallbjarnarstöðum. Átti liann unga konu, Helgu Jónsdóttur frá Arndísarstöðum. Var hún mesta myndarkona og fær í flestan sjó. Leitaði ég til hennar í vandræðum mínum, og varð það að samkomulagi, að hún saum- aði fötin, en ég yrði þar á meðan og ynni á túninu. Gekk þetta allt eins og í sögu. Helga saumaði fötin og gerði það með prýði, svo að ég hef ekki fengið betur sniðin föt hjá klæðskera síðan. Allt þetta tók þá svo langan tíma, að ég var ekki kominn í vistina hjá Snorra fvrr en degi seinna, en til stóð og ákveðið var. Enda fékk ég duglegar ávítur ltjá honum, er ég kom, og sagði hann, að ég mætti venja mig á meiri stundvísi í framtíðinni. Er ég hóf þetta þriggja ára nám mitt, var aleiga mín tvenn nærföt, nýju fötin, sem ég var í, og svo gömul föt, sem ég til þessa hafði haft til spari undanfarin ár, og varð ég nú að nota þau fyrir vinnuföt. Sokka- plögg átti ég sæmileg, en enga skó aðra en eina sauðskinnssskó. Varð ég því að byrja á því að láta smíði mér skó og fá þá að láni. Peningaeign mín öll var 25 aurar, og svo átti ég eitt lambskinn. Og þegar ég liafði selt lambskinnið, gat ég keypt „tommu- stokkinn" og tréblýant; en þar fóru líka 25 aurarnir! Ekki gat ég vænzt neinnar lijálpar heiman að, að öðru leyti en því, að móðir mín sendi mér á hverju ári sokka eftir þörfum. X. Lærlingur. Snorri Jónsson átti hús í Norðurgötu á Oddeyri. Var það tvílyft timburhús. Ekki voru þá nokkur hús tölusett á Akureyri. Var því hvert hús nefnt eftir eiganda. Þá voru aðeins sex hús við Norðurgötu. Syðst var hús Ágústs Þorsteinssonar bókbind- ara, næst Guðmundar Vonar-formanns, þá Snorra-hús og næst hús Guðna Þorkelsson- ar. Síðan kom löng eyða út að prentsmiðju Björns Jónssonar, og svo enn lengra út að Jensens bakaríi. Ég fékk herbergi uppi á efri hæð. Þar voru tvö rúm, hvort upp af öðru, eins og venja- er á skipum. Eitt borð var þarna og einn stóll. Ekki var herbergið stæna en svo, að meira komst þar ekki fyrir. Þó var það gott, meðan ég var einn í því. En seinna urðum við að búa þarna fjórir saman, og urðum við þá að sofa tveir í hvoru rúmi. En ekki gat setið nema einn í einu. Urðu þá hinir að skríða inn í rúmin, þangað til

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.