Nýjar kvöldvökur - 01.10.1951, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1951, Blaðsíða 23
N. Kv. SVEINN SKYTTA 137 ræskti sig nú hressilega og lét glamra í sverði sínu, en það var venjulega vottur þess, að nú varð tekið að liitna í honum. Kaupmaðurinn sat skuggamegin við eik- arhorðið og krotaði með penna; nú dvfði liann honum í blekið og skrifaði tvö orð á miða og ýtti honum til Tyge. Lénsmáður- inn leit á miðann og varð forviða, er hann ias orðin tvö: „Látið undan!“ Hann áræddi ekki að líta á Espen, en þar eð hann var vanur að fara að góðum ráðum lians, breytti hann skyndilega um tón og rnælti: „Hamingjan góða! Rjúkið þér nú ekki upp út af engu, maður minn. Eg sagði þetta aðeins í spaugi!" „Æ, herra lénsmaður!" sagði Sveinn Gjönge, „þér rnegið heldur ekki ætla, að mér hafi verið alvara með það, er ég sagði. Hvernig ætti mér að detta í huar að taka hest yðar með valdi, þar sem mér var kunnugt fyrir fram, að þér munduð fúslega lána mér hann.“ Tyge leit til kaupmannsins og virtist vera að hugsa sig um, hverju hann ætti að svara. Kaupmaðurinn tók þá til orða: „Já, þér lítið til mín, náðugi herra léns- maður! Nærvera mín hér er sennilega yður og þessum góðu mönnum til óþæginda. En ef þeir vildu fara sem snöggvast ofan í borg- arstofuna, meðan þér ljúkið máli yðar við mig, mun ég þegar halda á brott, og getið þið síðan talazt við í næði.“ „Stendur lengi á þessu?“ spurði Sveinn. „]a, nei-nei,“ mælti Tyge. „Fáið ykkur að borða og drekka niðri, og komið síðan hingað aftur, er þið hafið borðað.“ Þrátt fyrir skarpa athygli Sveins, hafði bragð kaupmannsins farið fram lijá honum, og hann áttaði sig því heldur ekki á þess- ari snöggu breytingu í viðmóti. Hann tók samt boði lénsmannsins og gekk til dyr- anna. Ib ræskti sig og glamraði ægilega með sverði sínu, er þeir gengu á brott. Óðar er þeir voru komnir frarn fyrir, þreif Ib í handlegginn á Sveini og lagði eyra upp að hurðinni og hleraði; en hljóðskraf þeirra Tyga og kaupmannsins varð aftur dauft sök- um fjarlægðarinnar. „Sem ég er lifandi maður,“ hvíslaði Ib, „þeir ætla að beita okkur einhverjum brögðum. F.g sá svo sem kænskuglottið á kaupmannsskrípinu, er þti snerif baki við horium. En við sktilum nú komast að því, hvað þeir liafa á hak við eyrað.“ Að svo mæJtu leysti liann sverðbelti sitt og rétti Sveini. „Hvert ætlarðu að fara?“ „Aftur inn í stofuna. Ég lét sem ég lok- aði liurðinni á eftir niér, er við fórurn, en Jiún stendur í liálfa gátt. Bíddu mín fyrir utan! Þeir liafa vafalaust einltverja klæki í huga.“ Og þannig hóf kaupmaðurinn einnig máls, er Sveinn var farinn burt. „Þeir búa eflaust yfir éinliverjum klækj- um, þorpararnir þeir arna.“ „Haldið þér það?“ sagði Tyge forviða. „Já! Og hver haldið þér það ltafi verið, sem þér áttuð tal við?“ „Mér virtist liann annars fremur ískyggi- legur,“ mælti Tyge varkár, til þess að varpa ekki fram neinum getgátum. „Það var svei mér enginn annar en Sveinn Gjönge.“ „Sveinn Gjönge!“ endurtók lénsmaður- inn og hrökk við. í sama vetfangi opnaði Ib hurðina og smeygði sér á bak við stóra hægindastólinn í ofnskotinu, sem Tyge var nýstaðinn upp úr. „Sveinn Gjönge með fimmtíu þúsundin?“ „Hvort sem hann var með þau eða ekki, þá var þetta svei mér hann og enginn ann- ar. Mig skyldi svo sem ekki furða, þótt það reyndist eitthvað annað en franskvín í kvartilinum tveim, sem hann minntist á.“ „Þér segið nokkuð. Þeir hafa falið pen- ingana í kvartilunum og ætla nú að laum- ast gegnum Svía-herinn á þennan hátt.“ „Já, nú erum við nærri komnir að efn- 18

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.