Nýjar kvöldvökur - 01.10.1951, Page 38

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1951, Page 38
152 BÆKUR N. Kv. um árum seiuna skoðaði ég aftur bein þessi og fann þá tvo neðri kjálka úr manni, svo að sýnilegt var, að hér voru beinaleifar tveggja manna. Um þessar mundir var talið í nágrenni Egilsstaða, að sagan um Valtý á grænni treyju væri að mestu leyti sönn. Jón Arnórs- son var lögsagnari á Egilsstöðiim árin 1769 —1778 og á þeim árum hefði vinnumaður Péturs sýslumanns á Ketilsstöðum átt. að vera myrtur og Valtýr á Eyjólfsstöðum tek- inn saklaus af lífi, ef sagan væri rétt. En hvergi finnst í málskjölum né dómabókum neitt um mál þetta, enda myndi Pétur sýslumaður liafa getið þessara atburða í ann- ál sínum, Ketilsstaðaannál, ef þeir hefðu gerzt í hans tíð, en það gerir hann ekki. Er því sýnt að saga þessi er annað' hvort upp- spuni einn, eða drög til hennar liggja aftur í miðaldir. En enn er órannsakað, hvaða ólánsmannabein hafa geymzt í klettahyll- unni á Gálgaás. Jón Björnsson hefur þjóðsöguna um Val- tý á grænni treyju að aðalefniviði í skáld- sögu sína. Skiptir það vitanlega litlu máli fyrir skáldið, livort sagan um Valtý er sönn eða ekki. En hún er að ýmsu leyti mjög sönn þj óðlífslýsing frá þeim tíma, er lögð var áherzla á að enginn afbrotamaður slyppi við hegningu, og jafnvel fremur að taka saklausan mann af lífi en að láta glæpa- manninn sleppa. Þá er hún og sönn að því leyti, hvað almenningsálitið er fljótt að snúa snældu sinni. Mannlýsingar sögunnar eru ágætar og atburðarásin með miklum dramatíslcum stíganda. En galli Jrykir nrér jrað á sögunni, að höfundurinn hefur ekki kynnt sér staðhætti, Jrar sem sagan gerist. En sagan er skemmtileg og mun Jjví verða mikið lesin. Þ. M. J. Benedikt Gröndal: Ritsafn, II. bd. Rvík 1951. Útg. ísafoldarprent- smiðja. Annað bindi af ritsafni Gröndals er ný- konrið út. Er Jrar með lokið Jrremur fyrstu bindunum af þessu merkilega ritsafni, og einungis eitt eftir, sem flytja mun ævisögu skáldsins, úrval af bréfum og e. t. v. eitthvað fleira. Bindi Jretta flytur sögur Gröndals frurn- samdar og þýddar, leikrit, rímur og eina ritgerð. Þarna eru liinar ódauðlegu ganran- sögur: Heljarslóðarorusta og Þórðar saga Geirmundssonar, jafn ferskar og hressandi og þegar Jrær fyrst komu út. Heljarslóðar- orusta á níræðsafmæli á þessu ári, og lnin vekur áreiðanlega enn jafn heilnæman og hressandi hlátur og í fyrstu, enda eitt hinna sígildu rita í ísl. bókmenntum og hið allra fyndnasta. Enda Jrótt Þórðar saga standi henni að baki, er hún alltaf bressileg og ýnrsar örvar hennar hitta í markið ekki síður nú en fyrst, er hún birtist. Margt skemmtilegt er í hinum þýddu smásögum, enda bera þær mjög höfundareinkenni Gröndals. Þýðingarsýnishornið úr Þúsund og einni nótt sýnir, að ekki hefði sú bók orðið ólæislegri í meðförum Gröndals en Steingríms, Jjótt góð sé. Þá eru Jrarna leik- rit og leikritabrot, og er Gandreiðin Jjeirra kunnust. Enn er Saga af Andra jarli, og Rímur af Göngu Hrólfi og að lokum hin snjalla ritgerð, Reykjavík um aldamótin. Við lestur hennar flýgur manni í hug að gaman væri að fá slíka lýsingu af höfuð- borginni nú urn rniðja öldina. Eins og hinum bindunum fylgja skýring- ar. Hefur Guðbrandur Jónsson prófessor samið skýringar við Heljarslóðarorustu og Þórðarsögu, og eru þær ýtarlegastar. En ekki hefði síður verið nauðsynlegt að fá jafnýtarlegar skýringar yfir Gandreiðina, sem raunverulega er á ýmsa lund lítt skilj- anleg nútíðarmönnum, enda um dægurrit að ræða. St. St.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.