Vetrarbrautin - 01.01.1907, Blaðsíða 15
13
„Pú veizfc hvar jeg á heima, ef þig iangar til að
heimsækja mig,“ svaraði Lola.
Og Turiddu heilsaði henni svo opt og heimsótti
hana, að Santa skeliti aptur glugganum viÖ neflð á
honum. Nágrannarnir bentu brosandi á hann og hristu
höfuðið þegar hann gekk hjá þeim. Máðui Lolu var i
markaðsferð með múlasnana sína.
„Jeg ætla að skriptast á sunnudaginn, — mig
dreymdi svört vínber í nótt!“ sagði Loia.
„Gerðu það fyrir mig að gera það ekki!“
„Nei, — nú líður að páskunum og maðurinn minn
krefst þess að vita, hvers vegna jeg læt ekki skriptast.“
■— Santadóttir meistara Ooia kraup við skriptastólinn
og beið til þess er að henni kæmi, meðar. Lola taldi
fram syndir sínar. „Þig vildi jeg ekki senda til Róm
til að gjöra yflrbót!" tautaði hún — „bíddu bara við!:‘
Meistari Alfio kom heim með múldýrin sín og
peninga í rasanum; hann hafði keypt failegan, nýjan
kjól handa konunni sinni fyrir páskana.
„Það var fallega gjört af þjer að muna eptir kon-
unni þinni," sagði Santa, „liún hefur ,,prýtt“ húsið
þitt svo laglega meðan þú varst burtu!“
Alflo var ílutningsmaður og haliaði húfunni. IJann
varð eldrauðui í framan þegar hann heyrði hana tala
svona um konuna sína, — eins og hann hefði verið
stunginn með hníf.
„Hvert í sjóð'bullandi! Ef þú lýgur, skal jeg rífa
glyrnurnar út úr hausnum á þjer og öllu þínu bann-
settu hyski, svo þið haflð eitthvað til þess að grenja af.“
„Grenja af,“ svaraði Santa, — „jeg græt ekk3
framar, því jeg hef með mínum eigin augum sjeð hanw