Vetrarbrautin - 01.01.1907, Page 24
Er leit hann soninn,
þá lýsti vonin;
og örmum bundinn
var blóminn fundinn.
„Mig flutti svanni
að föðurranni,
í tryggðaböndum,
úr tröllahöndum."
„Helzt vildi’ eg mega
hringþöll eiga;
kongsmenn skulu Ýjóna
dóttur kotungshjóna."
Samþykkti sjóli
á siklingstóli,
22
og valdsmenn ijet kalla
tíl veizluhalla.
Lifði knár svanni
í konungsranni,
og Hlini, lengi,
í lukku-gengi.
Enn þá óm-vauir
kvaka íslands svanir,
þó fækki tröllum
í fjalla-höllum.
Og margur knár svanni
býr í kotungsranni,
gróðurinn forni
í garðshorni.
L. Th.
Sonza-steinainn.
Eptir Válerio de Gonsález.
I.
Árið 1808, þegar hej- Napóleons mikia brauzt inn
á Spán, flýði Jóhann VI. Portúgalskonungur til Brasilíu,
sem um langan aldur hafði verið nýlenda frá PortúgaJ,