Vetrarbrautin - 01.01.1907, Side 28

Vetrarbrautin - 01.01.1907, Side 28
26 „Lífi mínu?“ „Já, lífi yðar, Don Manoel! í dag hef jeg einmitt gjört húsrannsókn hjá Don Rodrigi Soldansza. Kannist þjer við hann ? “ Auðmaðurínn varð náfölur. Soldansza var einka' vinur hans og hafði hann lengi átt bi jefaskifti við hann, sem eins og nú s tóð á voru allhættuleg Don Pedro. „Þar fann jeg ýms skjöl eínkennilegs efnis,“ hjelt Don Alvarez áfram, „sem að vísu eiu enn eigi öðrum kunn enmjer/ „Og Soldanza?" mælti Don Pedro. „Hann er dauður! Hann sýndi mótþróa, svo vjer sáum oss eigi annan kost vænni en að skjóta hann, samkvæmt boðum ntjórnarinnar." „Og skjölin, sem þjer minntust á?“ „Þau eru hjerna!" Höfuðsmaðurinn dró stóran brjefastranga upp úr vasa sínum. Don Pedro rak ósjálfrátt upp angistaróp. „Þessi brjef lýsa svikráðum gegn vorri hágöfugu stjórn. íar er meðal annars lofað að útvega upp- reistarmönnunum hesta, vagna, vopn o. fl. Sá, sem brjefin hefur ritað, heitir Don Manoel Pedro, alveg eins og þjer! Þjer eruð ef til vill svo glöggskygn, að þekkja höndina á þeim!“ Höfuðsmaðurinn hjelt nú skjali einu upp að augunum á Don Pedro. „Paí er úti um mig!“ stundi Don Manoel Pedro. „Hvers vegna? Jeg hef þegar tekið það fram, að það er á yðar valdi sjálfs að sleppa úr þessum ógeðfelldu kröggum. Einungis jeg einn þekki þessi skjöl. Hvað bjóðið þjer mjer til þess að brenna þau?“ — „Helminginu af öllum eigum mínum!"

x

Vetrarbrautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vetrarbrautin
https://timarit.is/publication/522

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.