Vetrarbrautin - 01.01.1907, Page 35

Vetrarbrautin - 01.01.1907, Page 35
33’ milli mín og námumannanna. Einu sinní biargaði jeg honum úr lífsháska og nú gjörir hann mjer aptur sama greiðann. — Jeg sje það vel, að fcil þess eins hefur hann orðið þjónn Pintos, að bjarga lífi mínu, hvernig sem honum hefur tekist að koma. fyrirrennara sínum úr vegi. Um miðnætti, hvíslaði hann að mjer, skaltu vera vakandi. Sambi hefir þvi í hyggju að koma mjer undan á flótta." „Við óskum þjer til hamingju!“ sagði Antonio, „En myndi þessi hjálp einnig ná til samfanga þinna?“ „Já, auðvitað! Ef jeg fer, vona jeg að þið fylgið mjer, elsku bræður! — "Við verðum að hjálpa hver öðrum, ætt.jarðarvinirnir!“ — Allir fangarnir biðu miðnættisins með óþreyju. Þá glamraði í hlekkjunum og lokunum, hurðin opnaðist og svertinginn kom inn með skriðljós í hendi. „Ertu vakandi, Don öomez? — Við bíðum þín. — Hjer ei ekkert að óttast. Hjerna er laghnífur og skammbyssa, Don Gomez, fylgdu mjer, —komdu nú!“ „Og fólagar mínir?“ „Jæja þá, bi'æður, — komið þið líka, en fljótt, fljótt! og farið þið nú hljóðlega!“ Svertinginn leiddi þrjá flóttameunina út úr klefan- um og læsti honum á eptir sjer. Hann fór með þá út í ganginn. Þar hjekk eirlampi mikill og láu þar tveir hermenn á verði steinsofandi. „fessir piltar vakna ekki í bráðina, — jeg hef gefið þeim að drekka!“ sagði Sambi. Siðan gengu þeir inn í herbergi Pintos, — þar sat hann í legustól, bundinn á höndum og fót.um og kefli rekið í kjapt honum. 8

x

Vetrarbrautin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vetrarbrautin
https://timarit.is/publication/522

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.