Vetrarbrautin - 01.01.1907, Side 51

Vetrarbrautin - 01.01.1907, Side 51
Dalkveðja. Eptir Ouðm. Ouömundssou. Himinfriður, heilög r6 hvílir yfir dalnum mínum, þar sem Hulda hörpu sló hljóð, er fyrsta von mín dó; — litia drengnum frið og fró færði hún í tónum sínum, þegar sól í heiði hló. * * ♦ Einhversstaðar úti þar, ungur týndi’ eg perlum skærum. — Ofurlitlir ljúflingar Ijeku sjer um grundirnar og með barnsins tárum tærum vættu rósavarirnar. Ejett við litla lækinn minn lá jeg þar í miðjum hlíðum, og við niðaróðinn sinn unaðslega sorgblandinn svæfði’ hann mig, — í blundi blíðu blærinn ljek um vota kinn, En er svanasöngurinn sveif með þýðum klið um dalinn. við þann sæia samhljóminn settist jeg upp hálfvakinn, — vængjablik við bláan salinn blasti gegnum svefnrofin.

x

Vetrarbrautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vetrarbrautin
https://timarit.is/publication/522

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.