Vetrarbrautin - 01.01.1907, Síða 55

Vetrarbrautin - 01.01.1907, Síða 55
53 tekið fram, að ljósið or 8 miniitur o<r 12 sekfindur frii sólinni til jarðarinnar. Sýnir |>að, að sólin ocr jörðin eru okki alTeg hvor við liliðina á annari; enda eru 20 milljónir milna á milli þeirra (í meðalfjarlægð). Til eru líka fastastjörnur (sólir), sem eru svo langt frá jörðinni, að ljósið þarf heilt ár til að berast þangað. Og þó oru til fastastjörnur, som jörð vor fœr ekkert ljósboð frá fyr en eptir þúsundir ára; og þó fer ljósið, cins og áður er sagt, 42,000 mílur á einni sokúndu; og, auðvitað, mœtti taka dýpra í árinni, þvi að stjörnugeimurinn er eilifðardjúp með Ijcsár að baki, hafin í hærra og aptur hærra veldi, þar sem óteljandi himinhnettir sveiflast í ómælisfjarlægð; sól tokur við af sól fjær, og enn fjær, út í algeimsdjúpinu, og umhvorfis hverja sól stíga roikistjörn- urnar hringdansa án afláts. Og liklega sveiflast öll sólkorfin um einhverja alhoims-sunnu, sem onginn veit þó h v e r er, nje h v a r hún er. En þyngdarlögmálið heldur alheims- og ómælis-stjörnu- djúpinuíendalausrihnatta-hringiðumeð lífs-afli og Ijós-straumum. rvn' Og jörðin tckur þátt i alheirashringiðunni i hnattakorfinu. Hvergi er kyrrð. Allt hreyfist. Jörðin þýtur áframí geimnum með 4 mílna hraða á sekúndunni; og her með sjor allt, sem á henni er, lifandi og dautt, hún dansar i kring um sólina — rósleit af morgunroða, eða gulltjölduð aptanskini, scm sólin sendir henni moð skyndiboða ljóssins, eða jörðin lendir í Ijós- flóði hádagsins, sem brotnar á honni, er hún snýr þannig við sólu og hefur nótt að gcislabaki. — Dagur og nótt or aðfall og útfall ljósstreymisins, eins og flóð og fjara hafsins. En svo að bundinn sje nú cndi á þossa sundurlausu „þanka“, þá skal þess getið, að enginn sá allsherjarmælikvarði finnst, þcgar öllu or á botninn hvolft, svo að setja mogi nokkur algild takmörk á milli hugtaksins ^,hratt“ og „seint“, „seint“ og „kyrt“. Og hvað sje seinast alls, som hrærist, og ætti því að standa allra næst „kyrð“, veit enginu; og cins er um það, hvað hraðast sje í gjörvallri tilverunni, — noma ef vera kynni hugur manns; hann jcr einkar hraður í forðum, og liann er líka alveg t r j á 1 s. L» Th,

x

Vetrarbrautin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vetrarbrautin
https://timarit.is/publication/522

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.