Vetrarbrautin - 01.01.1907, Qupperneq 55
53
tekið fram, að ljósið or 8 miniitur o<r 12 sekfindur frii sólinni
til jarðarinnar. Sýnir |>að, að sólin ocr jörðin eru okki alTeg
hvor við liliðina á annari; enda eru 20 milljónir milna á milli
þeirra (í meðalfjarlægð).
Til eru líka fastastjörnur (sólir), sem eru svo langt frá
jörðinni, að ljósið þarf heilt ár til að berast þangað. Og þó
oru til fastastjörnur, som jörð vor fœr ekkert ljósboð frá fyr en
eptir þúsundir ára; og þó fer ljósið, cins og áður er sagt, 42,000
mílur á einni sokúndu; og, auðvitað, mœtti taka dýpra í árinni,
þvi að stjörnugeimurinn er eilifðardjúp með Ijcsár að baki, hafin
í hærra og aptur hærra veldi, þar sem óteljandi himinhnettir
sveiflast í ómælisfjarlægð; sól tokur við af sól fjær, og enn fjær,
út í algeimsdjúpinu, og umhvorfis hverja sól stíga roikistjörn-
urnar hringdansa án afláts. Og liklega sveiflast öll sólkorfin um
einhverja alhoims-sunnu, sem onginn veit þó h v e r er, nje h v a r
hún er. En þyngdarlögmálið heldur alheims- og ómælis-stjörnu-
djúpinuíendalausrihnatta-hringiðumeð lífs-afli og Ijós-straumum.
rvn' Og jörðin tckur þátt i alheirashringiðunni i hnattakorfinu.
Hvergi er kyrrð. Allt hreyfist. Jörðin þýtur áframí geimnum
með 4 mílna hraða á sekúndunni; og her með sjor allt, sem á
henni er, lifandi og dautt, hún dansar i kring um sólina —
rósleit af morgunroða, eða gulltjölduð aptanskini, scm sólin
sendir henni moð skyndiboða ljóssins, eða jörðin lendir í Ijós-
flóði hádagsins, sem brotnar á honni, er hún snýr þannig við
sólu og hefur nótt að gcislabaki. — Dagur og nótt or aðfall
og útfall ljósstreymisins, eins og flóð og fjara hafsins.
En svo að bundinn sje nú cndi á þossa sundurlausu „þanka“,
þá skal þess getið, að enginn sá allsherjarmælikvarði finnst,
þcgar öllu or á botninn hvolft, svo að setja mogi nokkur algild
takmörk á milli hugtaksins ^,hratt“ og „seint“, „seint“ og „kyrt“.
Og hvað sje seinast alls, som hrærist, og ætti því að standa
allra næst „kyrð“, veit enginu; og cins er um það, hvað hraðast
sje í gjörvallri tilverunni, — noma ef vera kynni hugur manns;
hann jcr einkar hraður í forðum, og liann er líka alveg
t r j á 1 s.
L» Th,