Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 19

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 19
þetta á aðalfundum félaganna, þar sem hægt var að koma því við. 19. nóv. 1936 sendi F. í. L., út boðs- kort til allra félaga sjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði, þar sem þess var óskað að hvert félag til- nefndi 3 fulltrúa til að mæta á sam- eiginlegum fundi, með það fyrir aug- Um að stofna sjómannasamtök form- lega, jafnvel voru sjómenn í öðrum landshlutum hvattir til að hefjast handa í sama skyni. Fyrsta skriflega svarið sem barst við þessari viðleitni var frá Skip- stjórafélaginu Kári, Hafnarfirði dag- sett 4. desember 1936, svo hljóðandi: „Móttekð heiðrað bréf yðar d.s. 19. nóv. s. 1. Efni þess tekið fyrir á fundi í Skipstjórafélaginu Kári, Hafnarfirði í gær 3. des. og þar samþykkt og kosn- ir þrír menn sem fulltrúar frá „Kára“. Þeir skipstjórar Einar Þorsteinsson, Júlíus Sigurðsson og Olafur Þórðar- son og verða þeir væntanlega reiðu- búnir til frekara samstarfs við yðar félag, þegar þér óskið, og gjörið boð þar um. Vrðingarfyllst F. h. Skipstjórafélagsins „Kári“. Sign. Olafur Þórðarson. (form.) Næsta bréfið kom frá Sjómanna- félagi Reykjavíkut dags. 14. des. 1936: „Útaf heiðruðu bréfi yðar dags. 19. f. m. samþ. stjórn Sjómannafélagsins að velja þá Sigurjón A. Olafsson, Sig- urð Olafsson og Bjarna Stefánsson, til athugunar um, hvernig og á hvaða hátt unt er að framkvæma hugmynd yðar og í samráði við þá menn er önnur stéttarfélög kynnu að tilnefna samkvæmt ósk yðar, og um leið að kynnast skoðunum þeirra á þessu máli, áður en gengið er til fullnaðarákvörð- unar. Með félagskveðju, f. h. stjórnar Sjómannafélags Reykjav. Sigurjón Á. Ólafsson form. Bjarni Stefánsson ritari Bréf Vélstjórafélags íslands barst svo 6. jan. 1937, þar sem hugmyndin var talin vissulega góð, og sagt að vélstjórar vildu fúslega veita henni lið, því þeir væru ávallt reiðubúnir til samvinnu um góð mál með góð- um mönnum. Fyrsta fulltrúaráð Sjómannadagsins var skipað 22 fulltrúum frá 11 stéttarfélögum í Reykjavík og Hafnarfirði. Nöfn þeirra fulltrúa, sem enn eru á meðal okkar, fara hér á eftir: Henry Hálfdansson, Guðmundur H. Oddsson, Þorsteinn Árnason, Hallgrímur Jónsson, Grímur Þorkelsson, Jónas Jónsson, Friðrik Jóhannsson, Janus Halldórsson, Halldór Jónsson, Jón D. Eyrbekk. Fjórir fulltrúanna hafa verið lengur en 10 ár sem aðalfulltrúar í ráðinu: Henry Hálfdansson 25 ár, þar af 23 ár sem formaður. Guðmundur H. Oddsson 16 ár, Þorsteinn Árnason 15 ár, Hallgrímur Jónsson 13 ár. Hin félögin tilkynntu flest munn- lega fulltrúa af sinni hálfu. Að fengnum þessum góðu undir- tektum hinna einstöku félaga sjó- manna, var notað fyrsta tækifærið til að boða tilnefnda fulltrúa til fund- ar en taka varð tillit til þess að margir fulltrúanna voru starfandi sjómenn sem erfitt var að ná saman öllum í einu. Þessi fyrsti fundur fulltrúa sjó- manna um aðild að Sjómannadags- samtökum var haldinn í Oddfellow- húsinu í Reykjavík mánudaginn 8. marz 1937 kl. 14.00 e. h. mættir voru fulltrúar frá eftirtöldum 9. félög- um. Sjómannafélagi Reykjavíkur, Skipstjórafélaginu „Kári“ í Hafnar- firði, Skipstjórafélagi Islands. Skip- stjórafélaginu ,,Ægir“, Skipstjóra- félaginu Aldan. Skipstjóra- og stýri- mannafélagi Reykjavíkur, Vélstjóra- félagi Islands, Matsveina og veitinga- þjónafélagi Islands og Félagi ís- lenzkra loftskeytamanna. Fundarstjóri var kosinn Þorsteinn Arnason vélstjóri og fundarritari Friðrik Halldórsson loftskeytamað- ur. Fundarboðandi, Henry Hálfdáns- son form. F. I. L., hóf umræðu. Skýrði hann frá tildrögum þess að Félag íslenzkra loftskeytamanna leit- aði um það samvinnu við önnur stéttarfélög sjómanna, að stofnað yrði til sérstaks árlegs Sjómanna- dags. Er helgaður yrði sjómanna- stéttinni til að kynna alþjóð starfs- svið hennar og lífskjör og þýðingar- mikið hlutverk fyrir þjóðarbúið. Jafnframt því að unnið yrði að fjár- söfnun til veglegs minnisvarða, sem reistur yrði í höfuðstað landsins í minningu þeirra er farist hefðu við störf sín á sjónum. Taldi hann að slíkum samtökum biði mikil og veg- leg verkefni íslenzkri sjómannastétt til heilla. Afhenti hann fundarmönn- um vélritað uppkast að væntanlegri tilhögun eins og hann hefði hugsað sér framkvæmd slíks Sjómannadags. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 25
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.